727- Um bókasöfn og fleira

Í mínum augum eru þeir sem efni hafa á að kaupa sér þær bækur sem þá langar að lesa útrásarvíkingar og ekkert annað. 

Illa væri ég staddur ef bókasöfn tíðkuðust ekki. Núorðið má finna margt á Netinu en ekki allt. Bækur hafa vissa sérstöðu. Að geta fengið eins margar bækur að láni og hugurinn girnist án þess að borga nokkuð að ráði fyrir það er mér á við mörg gullklósett.

Höfundarrétthafar hafa jafnan horn í síðu bókasafna. Auðvitað er verið að ræna þá greiðslum ef horft er á málið á sama hátt og vaninn er í fréttum. Nýjir miðlar eru síður aðgengilegir á bókasöfnum en samt eru þeir í boði að ég held. Hefð er komin á bækurnar og þó oft sé erfitt að fá þær allra nýjustu er alltaf eitthvað að finna ef áhuginn er nægur.

Fór í dag á bókasöfnin (Kópavogs- og Borgar-) og spurði meðal annars hvort skírteinin mín væru að renna út. Ég er nefnilega að verða 67 ára og þá skilst mér að bókasafnsþjónusta (og eitthvað fleira) verði ókeypis. Auðvitað eru þau að renna út en mér tókst þó að fá nokkrar bækur á öðrum staðnum. Verð síðan að bíða fram undir miðjan september til að fá þessa þjónustu ókeypis. Það er að segja ef miðað er við fæðingardag frekar en fæðingarár.

Gaman er að fylgjast með bréfaskiptum Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar við Guðmund Andra Thorsson og þar áður við Karl Th. Birgisson ritstjóra Herðubreiðar. Þetta má finna á kaffstofunni á pressunni.is. Hannes er þrasari af Guðs náð og ágætlega að sér um margt. Ekki eins sérvitur og sumir aðrir þrasarar (Hmm - er ég að tala um sjálfan mig) og þess vegna oft áheyrilegur.

Hann er marktækur þó hólmsteinn sé.

Voðalega eru allir alvarlegir hérna. Má ekki gera grín að einhverju? Það er einn af mínum mestu bloggaraókostum hvað ég er alltaf alvarlegur. Samt er það augljóst þegar að er gáð að lífið er bara til að skemmta sér yfir því. Annar getur tilgangurinn ekki verið. Eftir að helvíti hætti að vera til er þýðingarlaust að bíða eftir því að allt fari til fjandans. Það er næstum eins vitlaust og verið getur að taka hlutina alvarlega.

Nú er ég búinn að blogga svo lengi að ég er orðinn vanur lyklaborðinu og get farið að láta allt flakka. Ég gæti reynt að semja smásögur eins og Jens Guð. Samt vil ég ekki hafa þær eins. Meira svona eins og eitthvað allt annað.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Talandi um bókasöfn og bókasöfnun; í moggatetrinum birtist frétt fyrir nokkrum dögum, sem mér er sagt að hafi gert öll íslensk einkabókasöfn verðlaus. Fréttin er vafalaust ekkert annað en frásögn af staðreyndum, en það fara samt sögur af því að dagana, sem síðan eru liðnir, hafi heilum ókjörum af bókum verið ekið í gámastöðvar Sorpu. Yngra fólk hefur nákvæmlega engan áhuga á bókum og les ekki bækur. Ef efnið, sem það hefur áhuga á, er ekki á Netinu, er það ekki til að þeirra mati. Því fólki, sem þarf að ráðstafa t.d. dánarbúum, þar sem okkar kynslóð og ég tala nú ekki um eldri kynslóðir, hafa kannski eignast fjölda bóka á langri ævi, hefur nú fengið góða afsökun fyrir því að fleygja þessu rusli.

Ellismellurinn 26.6.2009 kl. 07:43

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Lengi vel gat ég ekki hugsað mér að henda bók. En þetta kemur með tímanum. Enn á ég samt svolítið erfitt með það. Mun betra að gefa einhverjum hana. Ég skil þessa hugsun um Netið. Hugsaðu um öll bókahandritin sem við höfum aldrei séð. Bókaútgáfa er líka orðin svo ódýr og einföld að það er lygilegt.

Var að enda við að lesa merkilega bók sem heitir Tenerífe-dagar. Hún er eftir Kristján Jón Guðnason og hann gefur hana út sjálfur og vélritar hana ekki einu sinni. Teikningar og skrif. Eiginlega ekki um neitt.

Sæmundur Bjarnason, 26.6.2009 kl. 08:57

3 Smámynd: Óskar Þorkelsson

takk fyrir mig Sæmi :).. ég les þig daglega og bíð eftir hverjum pistli.. ekki í ofvæni , heldur líkar mér afskaplega vel sá stíll sem þú notar í þínum skrifum.. oftast sammála og þú ert með flottar myndir.

Óskar Þorkelsson, 26.6.2009 kl. 17:45

4 identicon

"Hann er marktækur þó hólmsteinn sé."

Ertu ekki alveg örugglega að djóka?!

Ég þori ekki að segja það sem ég er að hugsa um Hólmstein Kiljan...

Ööböö ---- ritskoðun ----- ritskoðun ----- ritskoðun ---- 

Malína 26.6.2009 kl. 19:32

5 Smámynd: Dúa

Mér finnst næstum því helgispjöll að henda bókum. Heimili mitt væri ekki heimili án allra bókanna. Bækur eru töfrar

Dúa, 26.6.2009 kl. 21:10

6 Smámynd: Óskar Þorkelsson

dúa.. bækur sem eru í hillum eru ryksafnarar..

Óskar Þorkelsson, 26.6.2009 kl. 22:02

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég hef heyrt þetta frá kennara að yngra fólk telji efni ekki til sem ekki finnst á netinu. Sannleikurinn er þó sá að flestallur dýpri fróðlerikur um nánast hvað sem er er ekki á netinu heldur í bókum. Það sem er kannski að gerast er það að fólk hefur ekki áhuga á öðru en yfirborðsþekkingu.

Sigurður Þór Guðjónsson, 26.6.2009 kl. 22:22

8 identicon

Ég þori nú varla að viðurkenna þetta með allt bókmenntaliðið hérna á síðunni:  Svo til einu bækurnar sem ég kaupi mér eru erlendir kiljukrimmar (ég á hauga af þeim)  - sem ég fel svo vel og vandlega inni í skápum og skúffum ef einhver álpast í heimsókn til mín...

Malína 26.6.2009 kl. 23:10

9 Smámynd: Dúa

Óskar : Við þó nokkra notkun á bókum sem eru í hillum þá safnast ekki svo mikið ryk. Svo á ég ryksugu

Dúa, 26.6.2009 kl. 23:48

10 Smámynd: Elle_

Ég vil bækur í hillum, finnst bækur koma anda í húsið, ryk eða ekki.  Þó eru bækurnar í hillunum heima mest eld-eld-eld-gamlar,  Eins og Dimmalimm og Doddi og Gagn og Gaman og svoleiðis.  

Elle_, 27.6.2009 kl. 18:17

11 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk öll.

Búinn að vera í burtu. Um bækur og þessháttar má endalaust bollaleggja. Kannski skrifa ég aftur seinna um þær og hvað hugsanlega muni leysa þær af hólmi.

Og Malína. Hannes er nú einhvern vegin þannig að það er erfitt að hlusta ekki á hann. Hversu marktækur hann er má svo eflaust deila um.

Sæmundur Bjarnason, 28.6.2009 kl. 23:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband