2907- Viðrekstur er hraustleikamerki

Andvökur geta sem best verið pródúktívar. Nú er rigning úti og klukkan að verða fjögur að nóttu til. Sé ekki betur en snjórinn sé svotil horfinn og vonandi svellbúnkarnir einnig. Tinna Alexandra er búin að vera veik. Annars var það í gær sem við áttum að fara í matarboðið og sjá bíómyndina. Sem ég veit svosem ekki hver er. Yfirleitt er ég nú í seinni tíð ekki mikið fyrir bíómyndir.

Farþegaþotan sem Rússar skutu niður 1983. Vera Illugadóttir sagði frá þessu atviki í þætti sínum „Í ljósi sögunnar“ í Ríkisútvarpinu í gærkvöldi (Laugardag) meðan við vorum að borða. Kannski var þetta endurflutningur. Man að þegar þetta var vorum við á ferðalagi með fornlegri járnbrautarlest á Mallorca á Spáni. Eða kannski á bílaleigubíl. Hafdís hefur líklega verið með okkur. Stoppuðum í einhverju smáþorpi uppi í fjöllunum á Mallorca og fengum okkur eitthvað í svanginn. Allir töluðu spæsku þar og við skildum ekki baun í því máli. Varð litið á risafyrirsögn í einhverju dagblaði og okkur skildist, á myndum og örfáum kunnulegum nöfnum, að farþegaþota hefði verið skotin niður. Man að ég var svolítið rogginn yfir að hafa þó skilið þetta mikið í spænskunni, þrátt fyrir enga kunnáttu í því máli.

Maduro er enn við völd í Venezúela þrátt fyrir öll lætin í fyrra. Held að Trump og Co. ættu að vera örlítið stilltari. Annars er það skiljanlegra að Bandaríkjamenn skipti sér af málum í Suður-Ameríku en hinum megin á hnettinum. Annars finnst mér, sem Evrópumanni, að ESB sé ögn skárra en USA. Minnir samt að á þeim bæ hafi Maduro lika verið fordæmdur. Ástandið í Venezúela er alveg óskaplegt engu að síður, skilst mér. Hverjum það er að kenna fyrir utan forsetann veit ég að sjálfsögðu ekki. Hugo Sanches var á sínum tíma mjög vinsæll.

Ákæra fulltrúadeildarinna á hendur Trump forseta er auðvitað mál málanna í Bandarískum stjórnmálum þessa dagana. Ukraina blandast að sjálfsögðu inní það mál alltsaman. Þar er allt þjóðlífið heldur vanþróað. Spilling mikil og stjórnmál skrítin. Á þeim nafla Alheimsins, sem Bandaríkin óneitanlega eru, eru stjórnmálin hinsvegar mitt aðaláhugamál núna. Mitt vit á þeim málum er einkum frá stórblöðunum þar í landi komið. Á þriðjudaginn kemur hefjast réttarhöldin í Öldungadeildinni og svo er farið að styttast í prófkjör Demókrata fyrir forsetakosningarnar í haust. Þó Biden sé þar sigurstranglegastur gætu Warren eða Sanders gert honum skráveifu.

Ótíð, snjóflóð, slysfarir og aðrar hörmungar setja svip sinn á fréttir dagsins hér á þessu kalda landi. Auvitað er við því að búast að einhverjir taki loftlagsvinkilinn á þetta alltsaman, en ég held að þess þurfi ekki. Á þessum árstíma má búast við hverju sem er. Sama er að segja um heimsmálin. Þau eru ekkert frábrugðin því sem vanalegt er. Fréttaflutningur er samt annar og meiri nú á þessum síðustu of verstu tímum. Heimurinn fer hlýnandi, ekki er nokkur leið að neita því, og sú ógn sem af því stafar er engu skárri en kjarnorkuógnin sem fyrri kynslóðir þurftu að búa við.

IMG 6427Einhver mynd.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Hugo Chavez (ekki Sanches) var vinsæll þar til afleiðingarnar af stefnu hans komu í ljós. Hlutskipti Maduros er ekki öfundvert. Hann tók við hrynjandi kerfi og það féll í hans hlut að tryggja klíkunni áframhaldandi völd. Enn sem komið er hefur honum tekist að útvega yfirmönnum hersins næga bitlinga til að þeir haldi áfram að styðja hann, en meira og minna allar siðaðar þjóðir hafa snúið við honum baki. Á endanum mun hann vitanlega hrekjast frá völdum. Hvort hann verður hengdur eins og óður hundur, líkt og Sjáseskú, á eftir að koma í ljós.

Þorsteinn Siglaugsson, 19.1.2020 kl. 20:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband