2774 - Er karlaveldið að hruni komið?

Er karlaveldið að hruni komið í Bandaríkjunum? Ein er sú stofun þar sem segja má að sé fulltrúi þess. Það er dómsmálanefnd öldungadeildarinnar. Mjög fáar konur eru í öldungadeildinni sjálfri, en þær finnast samt. Sú staðreynd blasti hinsvegar við repúblikönum að fyrir þeirra hönd var enga konu að finna í dómsmálanefndinni þegar að því kom að yfirheyra Blasey Ford og Kavanaugh. Aðeins gamla (og ekki svo gamla) karla. Þessvegna var fengin að reynslumikil kona til að yfirheyra Christine Blasey Ford um daginn. Demókratar hafa þó eina konu í þessari nefnd. Það er Dianne Feinstein. En það er meðal annars hlutverk þessarar nefndar að rannsaka þá sem tilnefndir eru til setu í Hæstarétti Bandaríkjanna. Í þessari valdamiklu nefnd eru 21 af 100 öldungardeildarþingmönnum. Skiptingin er 11 – 10 repúblikönum í vil. Einn repúblikani vildi þó rannsaka málið frekar, en það var Jeff Flake frá Arizona. Hann vildi að FBI rannsakaði þetta nánar og þessvegna frestast málið eitthvað.

Enginn þorir að nefna fílinn í stofunni þarna, en það er #MeToo byltingin og kosningarnar sem framundan eru. Allir eru skíthræddir við þessa byltingu og óttast að forysta repúblikana í báðum deildum þingsins kunni að vera í hættu og þarmeð er hugsanlegt að hitni undir Trump sjálfum. Að setja ábyrgð á þessu, á tvær manneskjur, er eitt af undarlegheitum bandarískra stjórnmála. Hvergi er karlaveldið eins fullkomið og í bandaríska þinginu. Öldungadeildin eða Senatið er þar alveg sér á parti. Ekki veit ég samt hver meðalaldur þingmanna þar er, en vafalaust er öldungadeild réttnefni. Sumir segja að bandarísk stjórnmál séu flókin og illskiljanleg, en það finnst mér ekki vera. Erfitt er samt að skilja Trump forseta stundum. Læt ég svo lokið vangaveltum mínum um bandarísk stjórnmál að þessu sinni, en af nógu er að taka.

Að sumu leyti er þetta að verða að myndarlegasta bloggi en þó getur vel verið að ég bíði eihvað með að senda það út í eterinn. Nú er laugardagsmorgunn og ég á næstum alveg eftir að fletta í gegnum hnausþykkt Fréttablað dagsins. Á morgun förum við væntanlega í afmælisveislu í Hafnarfjörðinn. Fór áðan í mína næstum því daglegu gönguferð og þó veðrið væri sæmilega gott lét sjórinn samt frekar illa og ærslabelgurinn var enn vindlaus og hvassviðrið líka.

Sennilega er best að notfæra sér ókeypis akstur um Hvalfjarðargöngin. Ætli sumir keyri þar ekki fram og aftur alla helgina til að spara sem mest. Að misheppnuðum fimmaurabröndurum frátöldum, er ég ekkert viss um að það verði mjög lengi sem hægt verði að fara ókeypis um þessi göng. Trúi ekki almennilega á það fyrr en gjaldskýlið verður rifið. Hver á það annars?

Helvítis fésbókin. Puðrar bara út í loftið einhverjum bréfun og ef þú ert svo vitlaus að lesa þau ekki og/eða að fara eftir þeim útí hörgul, ákveður þessi bókardrusla að gera eitthvað róttækt við fésbókaráskriftina þína án þess að þú vitir nokkuð af því. Ég er semsagt nýbúinn að uppgötva enn einn glæpinn sem þessi bókarandskoti hefur framið. Þreyti mína blogglesendur ekki með nánari útlistun.

Einhver mynd.Untitled Scanned 64


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hér er frétt handa þér, Sæmundur minn:

Abortion Activist to Women: If You’re Upset About Brett Kavanaugh “Divorce Your Husbands” 

WASHINGTON, DC | 9/28/18

Men, get ready. The feminist rage is upon you. In light of the heated Kavanaugh/Ford hearings and Republican senators’ push to install Kavanaugh ...

Jón Valur Jensson, 29.9.2018 kl. 16:21

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Jón Valur með rugl og raus,
rassinn öllum býður,
lostakarl með ljótan haus,
litlum stúlkum ríður.

Þorsteinn Briem, 29.9.2018 kl. 17:19

3 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Steini Briem er staðfastur 
stingur Jón Val prjóni.
Ekki er hann einhamur
ekkert líkur Jóni.

Sæmundur Bjarnason, 29.9.2018 kl. 21:25

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ljótt gerist það, hefnigjarnt hugarfar ESB-vinarins Steina Briem. Hér fyllir hann mæli synda sinna með tvöföldu mannorðsníði, í 1. og 3. línu, að slepptum öðrum köpuryrðum, en allt er það merki um neikvæða hugsun og þegar verst lætur algert siðleysi.

Ekki fer hann hér eftir 8. boðorðinu: "Þú skalt ekki bera ljúgvitni gegn náunga þínum." Slíkt ljúgvitni bar hann einmitt með nefndu mannorðsníði sínu og sakar mig jafnvel berlega um glæp gagnvart "litlum stúlkum", sem ég hef þó aldrei framið! Er ekki í lagi með þennan mann? Gekk hann á vegg, eða á hann bara svona bágt á sálinni? Ég verð samt áfram að gera ráð fyrir, að hér sé um fullorðinn mann að ræða, sem ber ábyrgð á orðum sínum og gjörðum.

Ekki var Steini hér minnugur orða Jesú Krists: "En ég segi yður: Á dómsdegi munu menn verða að svara fyrir hvert ónytjuorð sem þeir mæla, því að af orðum þínum muntu sýknaður og af orðum þínum muntu sakfelldur verða."

En lesi Steini orðin í sama guðspjalli, 5.25, til að læra af þeim, og dragi hann til baka orð sín hér og biðjist bæði innilega afsökunar á ljótri mannorðsárás sinni og biðji um leið síðuhöfund að þurrka út þessi orð af vef sínum, þá má Steini væntanlega við því búast, að hann fyrir þá einstöku heppni sleppi við þau óþægindi, sem þar eru nefnd, Mt.5.25.

En fólk ætti sannarlega að biðja fyrir Steina Briem.

Jón Valur Jensson, 30.9.2018 kl. 01:54

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

PS. Ég tók ekki eftir þessu innleggi hans fyrr en eftir miðnætti í nótt.

Jón Valur Jensson, 30.9.2018 kl. 01:56

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Fyrri tilvitnunin: "En ég segi yður: Á dómsdegi ..." er úr Mt.12.36-37.

Jón Valur Jensson, 30.9.2018 kl. 02:04

7 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Nú þykir mér aldeilis týra á tíkarskottinu, eins og hún amma mín var vön að segja. Ég á bara ekki krónu. Steini, passaðu þig á honum Jóni. Sennilega getur hann með Guðsorðastagli sínu kveðið þig niður í jörðina.

Sæmundur Bjarnason, 30.9.2018 kl. 11:28

8 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Ég óska þér innilega til hamingju með að vera orðinn svo skeinuhættur, Sæmundur, að Jón Valur sé farinn að herja á þig ... með dómsdag og alles bara :)

Þorsteinn Siglaugsson, 30.9.2018 kl. 14:21

9 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég tel ekki eftir mér að herja á ESB-Steina, en á Sæmund hef ég ekki herjað. Ef Steini sýnir ekki sóma sinn í því að draga hryllilega meiðandi orð sín til baka og biðjast þannig afsökunar, þá verð ég að hugsa minn næsta leik ... Og heldur léttvægur þykir mér Sæmundur reyndar í slapplegum viðbrögðum sínum hér.

Þið hljótið báðir, Sæmundur og Þorsteinn, að sjá, það er ekki hægt að leyfa þessum stjórnlausa Steina að níða þannig æru mína, bera í raun nauðgun upp á mig, og hafi hann ævarandi skömm fyrir sinn lygaróg og fullt tjón, ef hann afturkallar ekki orð sín!

En hver er annars kennitala Steina, ef hann gegnir ekki áskorun minni, og hvert er hans varnarþing fyrir rétti og hvert hans eiginlega nafn?

Jón Valur Jensson, 30.9.2018 kl. 17:35

10 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk Þorsteinn.

Ég get þó ekki látið hjá líða að svara Jóni Val með nokkrum orðum: Þú herjar á mig með því að láta þér ekki nægja að skrifa á þín fjölmörgu blogg. Steini sjálfur mun áreiðanlega svara þér. ESB hatur þitt og áróður gegn fóstureyðingum er ekki öllum að skapi. Jafnvel hefur þér verið úthýst sumstaðar og þú úthýsir þeim sem þér líkar ekki við. Mig telur þú slapplegan vegna þess að ég úthúða þér ekki eins og réttast væri.Steini heitir að mig minnir Þorsteinn Briem og ég veit ekki betur en hann hafi bloggað hér á Moggablogginu í eina tíð. Auk þess getur þú spurt Ómar Ragnarsson um hann. 

Sæmundur Bjarnason, 30.9.2018 kl. 21:58

11 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Ekki ætlar tuðarinn að blanda sér í harkið hér að ofan. Þakka góða færslu að vanda, en þó sérstaklega þetta með næstum því daglegu gönguna og fésbókarfjandann.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 30.9.2018 kl. 22:21

12 Smámynd: Jón Valur Jensson

"Mig telur þú slapplegan vegna þess að ég úthúða þér ekki eins og réttast væri," ritar Sæmundur, en skjátlast þar vitaskuld í þessu furðulega innleggi sínu.

Ég taldi hann slapplegan á þessari sérstöku vefsíðuslóð vegna þess að hann beitti ekki ritstjórnaraðstöðu sinni til að þurrka út örgustu níðvísu sem ég hef séð á öllu Moggablogginu; í það minnsta hefði hann getað sent Steina hana til föðurhúsanna með tilmælum um, að hann skyldi stokka hana upp og sleppa úr henni falsásökun sinni um glæpsamlegt athæfi af minni hálfu --- ásökun sem hefur hvergi áður heyrzt eða sézt, en Steini hefur sjálfur kokkað hér upp í hatursfullri rógsnáttúru sinni gagnvart mér.

Ég hélt að við værum sammála um að umbera ekki allt á netinu, Sæmundur, en ef þú umberð þetta, þá virðistu umbera allt!!!

Svo er mér alls ekki sama um að hér standi óhreyfð og óleiðrétt önnur níðlína Steina, 2. línan, þar sem hann bregður mér, af öllum mönnum, um það, sem fornmenn vorir kölluðu "ergi" og þótti hin grófasta ærumeiðing og raunar stórháskalegt að sletta fram.

Ég hafði annað álit á þér, Sæmundur, en það sem af þessu má álykta. Og furðulegt þótti mér, að þú sagðir hér, að "réttast væri" að "úthúða" mér (!), en með leyfi að spyrja: FYRIR HVAÐ? Fyrir að standa með lífsrétti ófæddra barna, sem nú er enn reynt að þrengja að og gefa opinbert skotleyfi á enn fleiri þeirra og enn þroskaðri en áður, eða fyrir einarða anstöðu mína gegn innlimun Íslands í Evrópusambandið -- afstöðu sem þú gefur heitið "ESB hatur þitt", án rökstuðnings.

Ennfremur, orð þín Sæmundur: "Þú herjar á mig með því að láta þér ekki nægja að skrifa á þín fjölmörgu blogg." ---Örlar hér á einhverri öfund vegna þess, að ég er með þrjú Moggablogg: aðalblogg mitt (ég skrifa þetta í nafni þess, sjá nafnlínuna neðar), jvj.bloggið (þar sem ég hef einungis skrifað 8 færslur í þessum fullnaða mánuði og jafnmargar í ágúst), og lifsrettur.blog.is? ---Eða vegna þess að mér er treyst fyrir að skrifa (og geri það alls ekki daglega) á þrjú önnur Moggabloggsetur f.h. þriggja samtaka? (en ein þeirra, Þjóðarheiður, eru blessunarlega nánast búin að gegna sínu góða hlutverki í vörn gegn Icesave-áþján ríkisstjórnar hér og Breta, Hollendinga og ESB).

Abbast þetta eitthvað upp á þig, Sæmundur, t.d. skrif mín á jvj.blog.is? Og var það rangt af mér að ætla, að þínar bloggsíður væru opnar fyrir athugasemdum lesenda rétt eins og Halldórs Jónssonar, Páls Vilhj., Ómars Ragnarssonar, Ómars Geirssonar eða mínar?

Jón Valur Jensson, 30.9.2018 kl. 23:25

13 identicon

Sæll Sæmundur.

Nú legg ég til við þig að þú fjarlægir 
þau köpuryrði svo ekki sé fastara að orði kveðið 
sem hér hafa verið gerð að umtalsefni og menn geti 
verið að kalla sáttir með þau málalok.

Skoðanir eða meintar lokanir á bloggi upphafja tæpast 
ummæli af þessu tagi. Minni á reglur sem gilda um bloggið
og hugsanlega ábyrgð þína í því sambandi.

Húsari. 1.10.2018 kl. 05:19

14 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Þú talar um ábyrgð, Húsari góður. Menn hljóta að bera sjálfir ábyrgð á sínum orðum. Hef aldrei eytt neinu hingað til úr athugasemdum og kann það ekki.

Sé ekki betur en þú sért sá eini hér sem notar dulnefni.

Sæmundur Bjarnason, 1.10.2018 kl. 10:12

15 identicon

Sæll Sæmundur

Svo einfalt er það ekki.
Reglurnar má sjá á forsíðu bloggsins.

Húsari. 1.10.2018 kl. 17:02

16 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

2775?

Halldór Egill Guðnason, 2.10.2018 kl. 03:35

17 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk fyrir. Ég er sjálfur að bíða eftir 2775, Halldór Egill. En þetta kemur víst ekki af sjálfu sér. Líklega verð ég að hjálpa eitthvað til. Þessar umræður allar hafa sett mig svolitið úr skorðum, ekki get ég neitað því.

Sæmundur Bjarnason, 2.10.2018 kl. 08:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband