2744 - Aldrei skal ég eiga flösku

Auðvitað er eitt af því fyrsta sem ég geri á hverjum morgni að gá hve margir hafi slysast til að skoða bloggið mitt daginn áður.

Nr. 1   Tek töflurnar mínar (sex að tölu: Á ég kannski að telja þær upp?)
Nr. 2   Tek inn eina skeið af lýsi.
Nr. 3   Fæ mér morgunkorn og kynni mér svolítið helstu fréttir á meðan.
Nr. 4   Fæ mér kaffi.
Nr. 5   Skoða hve margir hafa komið inná bloggið mitt, ef ég hef tíma til.
Nr. 6   Fer að undirbúa morgungönguna, en þar er um margskonar vana að ræða.

Að þessu sinni hyggst ég hlífa lesendum við þeirri upptalningu sem þá gæti tekið við. Hún er löng og sumum gæti þótt hún hálfleiðinleg.

Þó um þessa helgi séu svokallaðir „írskir dagar“ hér á Akranesi verður maður sífellt minna var við þessháttar húllumhæ eftir því sem árin líða. Fluttum hingað árið 2015 og mér er nær að halda á umfang þessarar „bæjarhátíðar“ hafi farið sífellt minkandi síðan. Kannski erum við bara svona leiðinleg að allir forðast okkur.

Í upphafi þessa bloggs, gleymdi ég alveg að segja frá því að þó svo ég hafi ekkert skrifað í gær, eru lesendur mínir komnir yfir 40 í dag eða eftir miðnætti í gærkvöldi. Monti lokið.

Nú er samkvæmt fréttum byrjað að fara með strákana í hellinum í Thailandi út úr honum. Sjaldan held ég að heimurinn hafi fylgst eins vel með björgunaraðgerðum og að þessu sinni. Held að allir sem með þessu fylgjast óski þess að aðgerðin gangi vel. Ég er reyndar sannfærður um að svo verður.

Með allskyns útúrdúrum er mér núna að takast að blogga um nákvæmlega ekki neitt. Hvernig skyldi ALVÖRU-bloggurum líka við þetta?

Vísan sem er að flækjast fyrir mér núna og sífellt kemur upp í hugann er svona:

Aldrei skal ég eiga flösku
aldrei bera tóbaksskrín.
Aldrei reiða ull í tösku
aldrei drekka brennivín.

Þessa vísu lærði ég fyrir margt löngu, sennilega næstum 70 árum og vitanlega er hægt að setja „alltaf“ í staðinn fyrir „aldrei“ í öllum vísuorðunum.

IMG 7959Einhver mynd.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Langt síðan maður hefur kíkt á bloggið þitt, skólabróðir. - Heldurðu að það sé kannski óheppilegt veður sem hafi haft áhrif á aðsókn að írskum dögum? Mér sjálfum þykir það líklegra en að Skagamenn séu allt í einu orðnir leiðinlegt fólk!  Hefði væntanlega kíkt þangað sjálfur hefði ég verið heima hjá mér, en við erum í bústaðnum núna og verðum eitthvað áfram og maður verður sífellt latari að keyra langar leiðir!

Ellismellur 8.7.2018 kl. 09:53

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Tekur alltaf töflur sex,
á teljarann svo lítur,
innlitið nú óðum vex,
engar fær hann vítur.

Þorsteinn Briem, 8.7.2018 kl. 17:16

3 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Töflur sex hann tók í gær
til að vernda blóðið sitt.
Sæmi litli fimur fær
fjöldamargt frá Steina titt.

Sæmundur Bjarnason, 8.7.2018 kl. 17:56

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Vísukornið hljómar óneitanlega betur með alltaf í stað aldrei, en svona er nú misjafn smekkur manna. Þakka gott blogg, sem fyrr.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 10.7.2018 kl. 01:49

5 identicon

Verð að kasta kveðju á þig Sæmi. :)

DoctorE 11.7.2018 kl. 09:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband