1599 - Palli Magg

Untitled Scanned 35Gamla myndin.
Þetta gæti verið Guðbjörg í Strympu.

Les yfirleitt aldrei Reykjavíkurbréf en hefur skilist að þar sé yfirleitt um að ræða einskonar superleiðara og oftast skrifuð af ritstjóra Morgunblaðsins. Gaman væri samt að sjá bréfið sem Palli Magg reiddist svona mikið útaf. Já það er óhætt að segja að hann hafi hjólað í Davíð og gæti átt eftir að sjá eftir því. Þó ég bloggi enn á Moggablogginu vegna þess að það er svo þægilegt er ekki þar með sagt að ég sé yfirleitt sammála Davíð; hann er óttalegur orðhákur og oft leiðinlega persónulegur. Öfgafull og yfirgangsöm framkoma hans er greinilega af líkum toga og hann virðist komast upp með næstum allt. Viðhlæjendur hans eru ótrúlega margir.

Get ekki séð að Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins hefði flutt sína frelsunartillögu vegna Geirs Haarde nema hann hafi verði búinn að ganga úr skugga um að hún yrði samþykkt. Það skýrir líka hve uppsigað sumum stjórnarþingmönnum er við þá sem þeim finnst hafa hlaupist undan merkjum. Ögmundur hefur ákveðið að ganga fram fyrir skjöldu og tilkynna um sína pólitísku hugarfarsbreytingu. Huglaus er hann ekki. Þessi tillaga hefur ekkert með mannréttindi eða réttlæti að gera en þeim mun meira um þöggun og mútur. Fróðlegt getur orðið að vita hver endalok hennar verða.

Sagt er að allir fái sína tímalínu á fésbók hvort sem þeim líkar betur eða verr. Einhverjir eru óánægðir. Mér finnst fésbókin fyrst og fremst ruglandi. Ágætur samskiptavettvangur samt ef menn vilja nota hana þannig eða eyða tímanum í að læra á hana. Sumir eru öllum stundum þar en aðrir kíkja örsjaldan og sumir aldrei.

Það er vel skiljanleg afstaða að vera alveg sama þó aðrir geti komist að næstum öllu um mann sjálfan ef þeir kæra sig um. Sumu vill fólk þó ekki deila með hverjum sem er. Þá ætti það ekki að hlaupa með það á netið eða leyfa öðrum það. Netföngin eyðileggjast að vísu smám saman ef Internetsalinn stendur sig ekki í stykkinu. Líka er alltaf hætta á að það fari í ruslið sem í rauninni ætti ekki að fara þangað. Samt eru það margir sem þurfa á netinu að halda og á margan hátt er maður hálfhandalaus ef það klikkar. Svona líkt og rafmagnsleysið var áður fyrr.

Rafpóstur er að mestu ónýtur vegna ruslpósts og auglýsinga. Fésbókin hefur að mörgu leyti komið í staðinn hjá afar mörgum en ekki er öruggur friður þar fyrir auglýsingum. Þær eru langt komnar með að eyðileggja möguleika internetsins en halda því samt uppi í raun og veru. Mótsögn? Já, vissulega en svona er þetta.

Áhersla sú sem sumir leggja á landsbyggðina gegn höfuðborgarsvæðinu er dálítið misheppnuð. Það eru kostir og gallar við hvorttveggja. Víða hefur þróunin orðið sú að borgirnar hafa þanist út á kostnað sveitanna. Opinberir aðilar eiga ekki að hafa það að meginmarkmiði að hafa áhrif á þá þróun. Auðvitað þarf samt að skipta sér af henni. Án þess getur hún farið úr böndunum. Atvinnutækifæri ætti aldrei að þurfa að skapa. Best væri auðvitað að engir þyrftu að vinna ef þeir kæra sig ekki um það.

IMG 7820Borgarspítalinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Ekkert með mannréttindi eða réttlæti að gera, segir þú, um tillöguna um draga ákæru Alþingis á hendur GHH til baka. Er það réttlæti að draga einn ráðherra fjölskipaðrar ríkisstjórnar til ábyrgðar gagnvart því þegar botninn datt úr fjármálastjórninni hér sem víðar? Mér finnst það miklu fremur ræfildómur og tilraun til að búa til blóraböggul og hvítþvo í leiðinni alla hina -- sem sumir standa sjálfir að ákærunni.

Í allt annan stað: Geturðu ekki gert upp við þig hvort Internetsalinn stendur sig eða stendur í stykkinu? Þetta er tvítekning. 

Sigurður Hreiðar, 29.1.2012 kl. 12:35

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Í mínum huga er það nánast aukaatriði hvort Geir verður dæmdur sekur eða saklaus.  Aðalatriðið er að rannsóknin og yfirheyrslurnar fari fram fyrir Landsdómi en það er líklega eitt síðasta hálmstráið sem við höfum í þeirri viðleitni að ná fram sannleikanum um hvað nákvæmlega gerðist.  Það eru mannréttindi allra þeirra sem töpuðu milljónum á miður góðum ákvörðunum stjórnvalda í sambland við rányrkju útrásardólga.

Anna Einarsdóttir, 29.1.2012 kl. 13:35

3 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Sigurður; bara um réttlætið. Almennt dregur það ekki úr sekt neins þó fleiri séu sekir. Held líka að yfirgnæfandi líkur séu á að Geir verði ekki dæmdur sekur. 

Varðandi tvítekninguna er ég alveg sammála þér. Þetta er einfaldlega lélegur texti. Biðst afsökunar á því.

Sæmundur Bjarnason, 29.1.2012 kl. 14:52

4 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Anna: Heldur þú að „sannleikurinn um hvað nákvæmlega gerðist“ komi fram með því að þjarma að Geir? Er þá sannleikurinn á hans valdi?

Sigurður Hreiðar, 29.1.2012 kl. 16:06

5 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Sigurður. Ég get svarað fyrir Önnu. Það er líklegra en ekki að við vitnaleiðslur fyrir landsdómi segi menn sannleikann. Að þeir sem væntanlega verða vitni í málinu gegn Geir geti samþykkt að fella það niður er afskræming á réttarfari.

Sæmundur Bjarnason, 29.1.2012 kl. 16:14

6 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Takk Sæmundur.   Þú, eins og langflestir Íslendingar, áttar þig á samhengi hlutanna.  

Anna Einarsdóttir, 29.1.2012 kl. 17:40

7 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Þurfa þessir blessaðir menn sem samþykkt hafa sjálfir að kalla GHH fyrir landsdóm að  ganga þau svipugöng að kalla yfir sig stöðu vitnis til að segja sannleikann? Geta þeir ekki einfaldlega gert það án þess að hafa Geir fyrir einhvern miðpunkt þar um? Það er að mínum dómi afskræming á réttarfari að kalla einhvern einn fyrir dóm um málefni sem fjöldi manna kom að og geta ekki einu sinni lagt málið fyrir hefðbundið dómskerfi landsins heldur eitthvert fyrirbæri sem heitir landsdómur og kannski í sjálfu sér afskræming á réttarfari. Þannig er nú samhengi hlutanna.

Sigurður Hreiðar, 30.1.2012 kl. 14:58

8 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Alþingismenn eru ekki vanir að svara spurningum sem til þeirra er beint. Fyrir dómi komast þeir kannski ekki hjá því. E.t.v. er hugmyndin um Landsdóm dálítið galin, en hún er í lögum og hefur verið lengi. Ein pólitísk aðgerð upphefur ekki aðra; vitleysan magnast bara.

Sæmundur Bjarnason, 31.1.2012 kl. 08:49

9 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Ósköp eru þeir aðþrengdir ef þeir þurfa að draga einn mann fyrir (lands)dóm til að kalla eftir því að verða knúnir sagna um það sem þeim liggur á hjarta. Sammála því að ein pólitísk aðgerð upphefur ekki aðra en í því tilviki sem hér er uppleggið er hægt að eyða einu pólitísku skemmdarverki með því að afturkalla það sem olli því.

Sigurður Hreiðar, 31.1.2012 kl. 11:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband