1598 - Kyndilmessa

Untitled Scanned 27Gamla myndin.
Svanur Kristinsson frá Svarfhóli.

Já, skákdagurinn var í gær 26. janúar vegna þess að Friðrik Ólafsson á afmæli þann dag. Fékk boð um að mæta á Toyota-skákmótið en var annað að gera og komst ekki þó stutt væri að fara. Gott ef það var ekki einhver snjór þegar Toyotamótið var haldið í fyrra. Veit ekki hvort ennþá eru einhverjir dagar ófráteknir fyrir eitthvað sérstakt. Bóndadagurinn er víst liðinn en konudagurinn kannski ekki. Man ekki eftir þessu öllu saman. Mæðra- feðra- systkina- frænda- og frænku-dagurinn eru eflaust líka til, fyrir nú utan öll samtökin sem hafa helgað sér einhvern ákveðinn dag. Skákin er að byrja á þessu núna og ekkert nema gott um það að segja. Man þó ekki hvenær fótboltadagurinn er.

Veðurvísur eru til um Pálsmessu og Kyndilmessu og ég held að ég kunni þær báðar. Pálsmessa tel ég að sé liðin og hafi verið 25. janúar en Kyndilmessa er líklega 2. febrúar n.k. Vísurnar eru svona:

Ef heiðskírt er og himinn klár
á helgri Pálus messu.
Mun þá verða mjög gott ár
mark skal taka á þessu.

Og hin:

Ef í heiði sólin sest (eða sést)
á sjálfri Kyndilmessu.
Snjóa vænta máttu mest
maður upp frá þessu.

Ekki held ég að mikið sé að marka þetta og vel getur verið að vísurnar séu vitlausar hjá mér. Hæfileg forneskja ætti ekki að skaða. Vísur þessar þekkja margir.

Búast má við öflugum flokkadráttum um Landsdómsmál Geirs Hilmars Haarde. Afgreiðsla þess máls getur vel orðið ríkisstjórninni skeinuhættara en flest sem hingað til hefur á daga hennar drifið. Ég hef samt alltaf verið þeirrar skoðunar að hún myndi ekki sitja út kjörtímabilið. Hvort alþingiskosningar verða nú í vor (auk forsetakosninganna) veit ég auðvitað ekki frekar en aðrir. Hugsanlegt er það samt.

Sagt er frá því á mbl.is að sannað sé að Eiríkur rauði hafi getað bruggað mjöð á Grænlandi því fundist hafi leifar af korni í fjóshaug frá hans tíð; síðan segir orðrétt á mbl.is:

Ætlunin er að flytja um 300 kíló af fjóshaugnum til Danmerkur til frekari rannsókna.

Þó það nú væri. Sennilega er þetta með merkustu fjóshaugum í heimi.

IMG 7816Trjágróður.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Aldrei fyrr séð mynd af þessum nafna mínum og nágranna. Takk fyrir þetta.

kv,

Svanur Gísli Þorkelsson, 28.1.2012 kl. 02:17

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Hann er líka á mynd frá 22. janúar. Ha ha. Þarna komst upp um þig.  Þú gætir lesið bloggið mitt betur!! Annars datt mér þú einmitt í hug, Svanur Gísli, þegar ég var að setja þessa mynd upp. Bjössi bróðir tók þessar myndir. Hann var líklega bensíntittur hjá mér þetta sumar sem gæti hafa verið 1971.

Sæmundur Bjarnason, 28.1.2012 kl. 03:23

3 identicon

Mér varð á að setja Kyndilmessuvísuna inn á fésbók og skrifaði þar eins og mér hefur alla tíð heyrst fólk segja: "Ef í heiði sólin sést" og fékk rokna skammir fyrir, því fullyrt var að þarna ætti að segja "sest".

Ellismellur 28.1.2012 kl. 09:54

4 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Hmm. Það kemur ekki fram hver maðurinn er í færslunni 22. jan. Sæmundur.  Þú segist reyndar sjálfur ekki vita hvaða fólk sé á þeirri mynd.

Ég sá Svan K. síðast á Svarfhóli 1960 og mundi ekki hafa þekkt hann í sjón tíu árum seinna.

Svanur Gísli Þorkelsson, 28.1.2012 kl. 12:06

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Afi minn hvað oft þessa vísu þá seinni, hann vissi aldrei hvort það var sest eða sést, man að hann velti oft vöngum yfir því, sagði að það skipti öllu máli hvort hún settist eða sæist þennan dag.  Það væri gaman að fá úr því skorið.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.1.2012 kl. 13:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband