1596 - Glærumálið mikla o.fl.

Untitled Scanned 2611Gamla myndin.
Þetta er líklega Hanna á Eiðhúsum.

Ég verð bara að segja það. Mér finnst stóra glærumálið hálfasnalegt. Að heilt háskólasamfélag skuli geta verið undirlagt svona vitleysu svona lengi er bara einum of mikið. Hugsanlegt er að einhverjir kannist ekki við þetta mál, en það er samt ótrúlegt. Til öryggis vil ég taka fram að í sem allra einfaldastri mynd fjallar það um glærur sem notaðar voru við kennslu í Háskóla Íslands og félagsskapinn Vantrú sem kvartaði undan efni glæranna.

Harpa Hreinsdóttir hefur nú hafið skrif á greinaflokki um málið. Þessar greinar eru í lengra lagi og svarhalarnir ógnarlangir. Vissulega kemur margt athyglisvert þar fram en fyrr má nú rota en dauðrota. Að kynna sér allt sem skrifað hefur verið um þetta merkilega mál er áreiðanlega á einskis manns færi. Þó held ég að Harpa hafi farið langt með það. Greinar hennar þrjár (eða fleiri) um þetta mál sem þegar eru komnar hef ég lesið og er samt ekki sammála sjónarmiðum hennar, en það yrði alltof langt mál að fara nánar út í það hér.  

Mér varð það á fyrir nokkru að samþykkja að Óli Gneisti Sóleyjarson notaði bækur sem ég hafði ásamt börnum mínum komið fyrir á vef Netútgáfunnar og kæmi þeim fyrir á rafbókavef sínum. Þetta var áður en ég vissi nokkuð um glærumálið mikla. Já, svona illa upplýstur var ég þá. Harpa Hreinsdóttir, sem stundum eða oftast nær, les bloggið mitt, m.a. vegna þess að hún er gift systursyni mínum, spurði mig með þjósti nokkru, í athugasemd á blogginu mínu, hvað það ætti að þýða að veita manni sem honum slíkt leyfi. Mér fannst hún með þessu sýna nokkra fordóma og fara með þessu frekar í manninn en boltann eins og stundum er sagt. Um þetta hef ég ekki meira að segja og finnst ég nú þegar hafa skrifað alltof mikið um málið.

Um daginn fjallaði ég eitthvað um dægurlagið um Bjössa á mjólkurbílnum sem geysivinsælt var fyrir löngu. Auðvitað kom svo í ljós að lagið er erlent þó textinn sé íslenskur. Öðru lagi man ég líka eftir þó dægurlög séu mér yfirleitt ekki ofarlega í huga. Textinn við það lag byrjar einhvern vegin svona: „Ég er glöð og ég er góð, því Jón er kominn heim.“ Kannski er lagið líka erlent en ég man eftir því að textinn þótti mér nokkuð góður þegar ég heyrði hann fyrst. Nú orðið finnst mér hann samt frámunanlega lélegur og fordómafullur. Ekki einu sinni fyndinn. Kannski hef ég breyst og kannski hafa viðmiðin öll í þjóðfélaginu breyst. Hvað veit ég.

Eva Hauksdóttir skrifar oft ágæta pistla á netið. Hvet menn til að kynna sér það sem hún skrifar. Ekki hef ég þó í hyggju að endursegja efni einhverra þeirra, en þeir eru yfirleitt góðir.

Auðvitað er mikið rætt um Landsdómsmálið manna á meðal. Í grunninn álít ég það mál vera enn eina tilraun stjórnarandstöðunnar til að koma höggi á ríkisstjórnina. Kannski á hún það skilið og kannski er þetta besta ráðið til slíks. Með þessu móti klofnar þingflokkur VG og ríkisstjórnarsamstarfið gæti verið í hættu. Kannski hafa Guðfríður Lilja, Atli Gíslason og Ögmundur Jónasson rétt fyrir sér með það að ákæran hafi í raun verið pólitísk; en af hverju er það fyrst að koma í ljós núna? Hefði ekki verið hægt að útkljá þetta mál fyrir löngu? Ég endurtek bara það sem ég hef áður sagt um þetta mál, að mér finnst málflutningur hins óánægða VG-fólks minna á prinsessustælana í ævintýrunum; „frekar engan en þann næstbesta“!!

IMG 7805Vöruhús.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ótrúlegt að fólk nenni að velta sér upp úr þessu fáránlega glærumáli; Menn farnir að skrá sig í ríkiskirkjuna og alles.. mar bara á ekki aukatekið orð :)

DoctorE 25.1.2012 kl. 14:34

2 identicon

Jón er kominn heim - Lag - texti: Robinson - Iðunn Steinsdóttir.
Svo syngur eitt lag sérstaklega í kollinum á mér. Minningar frá siglingartúr, á einum síðutogurunum, til Cuxhaven haustið 1958.  Volare.

Ólafur Sveinsson 25.1.2012 kl. 17:15

3 identicon

Ég vil gera þær athugasemdir við þessa færslu að ég les ekki bloggið þitt vegna þess hverjum ég er gift heldur vegna þess að við erum kunningjar og fyrrum göngufélagar og að þú hefur rangt eftir mér hvað ég sagði í athugasemdadálkum við færslur þínar frá í desember, þ.e. http://saemi7.blog.is/blog/saemi7/entry/1209796/#comments

og

http://saemi7.blog.is/blog/saemi7/entry/1210010/#comments

frh.

Harpa Hreinsdóttir 25.1.2012 kl. 17:29

4 identicon

Ennfremur bendi á að athugasemdadálkar við einstakar færslur á mínu bloggi hafa styst að mun eftir að Vantrúarnettröllin drógu sig í hlé. Og loks bendi ég á þá einföldu staðreynd að ef þér finnst blogg um eitthvað leiðinlegt eða flókið er náttúrlega einfaldast að lesa það ekki.

Ef þú ætlar að hafa eitthvað eftir mér í þínum færslum fer ég fram á að þú hafir rétt eftir. Og hvernig er "þjóst-merkið"? ;)

Harpa Hreinsdóttir 25.1.2012 kl. 17:34

5 identicon

Falskir strengir hjá Hörpu... eða hvað.

Langlokur skrifar fólk sem hefur ekkert  fram að færa.. langlokur les fólk sem er að leita að viðurkenningu innan um orðagjálfrið

DoctorE 25.1.2012 kl. 19:30

6 identicon

Sammála því að þetta blogg Hörpu er ansi langt um lítið efni, ólíkt frábærri samantekt hennar um siðblindu. Enginn er fullkominn og Harpa er sjálfsagt ágæt, en ekki skil ég hvað hún er að andskotast út í afa sinn

Bjarni Gunnlaugur 25.1.2012 kl. 19:41

7 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Harpa; það er þín túlkun að mér þyki bloggið þitt leiðinlegt og flókið og það er mín túlkun að þú hafir minnst á Óla Gneista Sóleyjarson af "þjósti nokkru". Eigum við ekki að láta þar við sitja?

Sæmundur Bjarnason, 25.1.2012 kl. 19:45

8 identicon

Jú pottþétt hún Hanna Þorgrímsd,á myndinni.

Númi 26.1.2012 kl. 00:01

9 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Ég held að það sé ekki fyrst að koma í ljós núna að ákæra Alþingis á Geir Hilmar sé og hafi verið pólitísk. Það hefur lýst af henni með neonljósi alveg frá upphafi, og ljósstyrkurinn jókst til muna þegar ljóst varð að hann yrði einn ákærður með þessum hætti.

Sigurður Hreiðar, 26.1.2012 kl. 11:51

10 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Já en Sigurður er það þá ekki líka pólitískt að bíða með það þangað til núna að flytja þessa tillögu?

Sæmundur Bjarnason, 26.1.2012 kl. 12:10

11 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Hvað annað? Pólitík endanna á milli. Var alltaf augljóst.

Sigurður Hreiðar, 26.1.2012 kl. 14:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband