1245 - Jólalok

Jóhannes Laxdal kallar mig sjálfhælinn bloggara. Það getur vel verið rétt hjá honum. Ég þykist samt hæla sjálfum mér á svolítið Þórbergskan hátt og þannig að ekki sé nauðsynlegt að taka það alvarlega. Annars hef ég yfirleitt mjög gaman af að lesa kommentin við bloggin mín. Það eru oft þeir sömu sem kommenta en það gerir ekkert til. Ef kommentin koma mjög seint geta þau að vísu misst marks. 

Er að lesa bókina eftir Sigurð A. Magnússon sem ég minntist á í síðasta bloggi. Mér finnst hann vera sjálfhælinn á allt annan hátt en ég. Hressandi samt að lesa slíkt. Ástæðulaust að leyna afrekum sínum. Ef aðrir hrósa manni ekki verður maður að gera það sjálfur. Erfitt að vera með öllu án hróss. Sigurður gerir stundum mikið úr göllum sínum líka og reynir með því að gera hrósið trúverðugra. Það er ein aðferð.

Jóhannes Laxdal kvartar líka undan því að skrifin hjá mér lognist útaf í leiðindum. Það er hans mat og ég get lítið við því gert. Takmarki mínu er þó náð ef hann lætur svo lítið að lesa þau.

Kannski er það einn helsti galli bloggskrifa að vaða svona úr einu í annað eins og ég geri. Mér finnst það bara tilheyra. Leiðist alveg geigvænlega að fabúlera lengi um sama hlutinn. Þó eru flestar blaðagreinar þannig. Þar er talað fram og aftur um það sama og höfundurinn telur sig eflaust vera að fjalla ýtarlega um málefnið. Mér leiðist bara.

Sennilega er það einmitt rithöfundaragi að sitja mánuðum eða árum saman við að semja bók. Hún má ekki fara útum víðan völl. Heldur verður hún að fjalla um það efni sem ákveðið er. Þá vil ég fremur agaleysið og óheftu tjáninguna. Því skyldi ég ekki þenja mig um hvað sem er? Kannski er þetta það eina sem ég get.

Íslenskir krimmar eru yfirleitt óttaleg froða. Hvort sem höfundurinn heitir Yrsa, Arnaldur eða jafnvel eitthvað annað virðist aðalmálið vera að teygja lopann sem allra mest. Auðvitað getur verið afþreying að lesa þetta en ekki skilur það mikið eftir. Verst er að höfundarnir eru mistækir. Það veit maður þó oftast ekki fyrr en eftirá. Þá er bókin sem maður var að enda við að lesa yfirleitt sú lakasta eftir viðkomandi.

Eiginlega eru jól og áramót hjá flestum ein samhangandi stórveisla. Nú eru flugeldamarkaðirnir farnir að spretta upp eins og gorkúlur um alla borg. En maður nær þó smáhvíld milli aðaldaganna. Rétt svona til að smakka plokkfisk og rúgbrauð og jafna sig. Svo endar þetta alltsaman gjarnan með glórulausu fylliríi. Svona er nú hækkandi sól fagnað hér um slóðir. Læt jesúbarnið liggja milli hluta. Það trúa hvort eð er svo fáir á það.

Enginn slær út hina ljósmyndaglöðu ElluHelgu í hverskyns matarbloggi. - Enda eru matarblogg svo vinsæl og skemmtileg. - Iss, svo þarf að skíta þessu öllusaman, ekki er það nú skemmtilegt. - Það er ekkert verra að skíta góðum mat en slæmum. - Ég vildi að ég væri enn að éta jólamatinn. Svo færi ég að sofa og svæfi vel og lengi og settist svo að jólaborðinu aftur. - Hvað, og engir afgangar eða fyrningar? - Jú, jú. Tvöfaldir afgangar og geymdust margfalt betur. Fengi ekki fisk fyrr en á næsta ári. - Ha? Jafnvel skötu? - Nei, ég segi það nú ekki.

Var að enda við að horfa í íslenska sjónvarpinu á heilmikla umfjöllun um WikiLeaks. Andstæðingar þeirra WikiLeaksmanna hafa eflaust ýmislegt við þá umfjöllun að athuga.

Þó finnst mér vel mega taka undir þá kröfu að hinum alþjóðlegu greiðslukortafyrirtækum sem hafa tekið að sér að valda almenningi erfiðleikum við að koma styrktargreiðslum til WikiLeaks verði gert sem erfiðast að starfa hér á Íslandi.

Auðvitað getur það komið almennum kortanotendum illa og ekki er hægt að gera ráð fyrir að Ísland skipti miklu máli í þessu tilliti. Afstöðu stjórnvalda mætti þó vel láta í ljósi við forsvarsmenn þessara fyrirtækja. Íslenska ríkisstjórnin gæti jafnvel áunnið sér virðingu einhverra með því.

IMG 3986Hér er það víst sem vegurinn endar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Fyrirgefðu Sæmi minn þetta með leiðindin. þetta var nú bara saklaus myndlíking um kertið og dragsúginn. Auðvitað bloggar þú skemmtilega. það sem ég átti við er að mér finnst sumt af því misáhugavert. Til dæmis bloggið um krakkana hennar ÖlluMöggu En það máttu vita að bloggið þitt er eitt af sárafáum sem ég les alltaf og það segir allt sem segja þarf vona ég.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 29.12.2010 kl. 01:44

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk Jóhannes. Já, ég geri mér grein fyrir því að sumum finnst það merkilegt sem öðrum leiðist. Mér finnst pólitíkin bara enganvegin nógu áhugaverð til að blogga um hana daginn út og daginn inn. Fréttir fjölmiðla finnst mér það ekki heldur.

Sæmundur Bjarnason, 29.12.2010 kl. 08:08

3 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Myndir segja þúsund orð og þessi er ramm pólitísk. Lýsir blindgötu ríkisstjórnarinnar og þeim steinum sem Steingrímur segir velt í götu hennar. Mér sýnist samt vera hægt að komast framhjá hægra megin en það er kannski tilviljun?

Lilja kyssir vöndinn vel
vinir hana letja
Vilja ekki grænir græn
gildi núna setja

Setja núna gildi græn
grænir ekki vilja
Letja hana vinir vel
vöndinn kyssir Lilja

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 29.12.2010 kl. 09:08

4 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Eitthvað skolaðist þetta nú til hjá mér enda fæðingin erfið! Rétt er vísan svona

Lilja kyssir vöndinn væn
verkin hana letja
Vilja ekki grænir græn
gildi núna setja

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 29.12.2010 kl. 09:33

5 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Ég les bloggið þitt líka reglulega Sæmundur, nánast daglega.  Það er bara hluti af morgunverkunum hjá mér.

Það er eitt sem ég hef verið að hugsa af og til varðandi íslenskt málfar og rak augun í hér hjá þér; það hversu margir nota því í stað hví í spurningasetningum.  Ekki það að að ég sé málfarsnasisti líkt og fjarskyldur frændi minn, en mér finnst viss missir af aðgreiningu þar á milli.

Axel Þór Kolbeinsson, 29.12.2010 kl. 10:57

6 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Já, Jóhannes þetta er merkilegt. Það má leggja pólitíska merkingu í allt. Kannski er alveg eins heppilegt að fara vinstra megin við stóra steininn þó sú leið virðist torfarnari.

Vísan um Lílju er stórgóð. En ef ekki má yrkja ódýrara en sléttubönd þá er ég einginlega stikkfrí og get ekki meir.

Sæmundur Bjarnason, 29.12.2010 kl. 11:15

7 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Axel, mér finnst hví og því oft geta verið jafngilt. Hví flóttinn er þó áberandi. Kannski á hann sér skýringu í framburði. Hví og kví hljómar nefnilega oft næstum eins. Hef samt ekki velt þessu sérstaklega fyrir mér. Of miklar aðfinnslur varðandi málfar geta fælt frá en stundum líka hjálpað. Þarna er vandratað meðalhófið.

Sæmundur Bjarnason, 29.12.2010 kl. 11:21

8 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

þú kemur aðeins inn á jóla og áramótastemninguna hjá landanum Sæmi, en skautar fram hjá því sem oft er sagt mikilvægast við slík tímamót, þ.e. einhvers konar uppgjör við það liðna og væntinga og vonagerð fyrir framtíðina.

Ísland er eins nálægt stjórnarkreppu og hægt er að komast, án þess að viðurkenna það og efna til nýrra kosninga.  Ísland er einnig eins nálægt efnahags og atvinnukreppu og hægt er að komast, án þess að allsherjarupplausn ríki í landinu.

Mér er því spurn hvort hið alkunna æðruleysi og þolgæði Frónbúa hafi ekki breyst í sinnuleysi.

Enginn treystir stjórnmálaflokkunum til að koma skikki á hlutina en samt vill enginn hrófla við ríkjandi fyrirkomulagi. -

Kannski að þetta sem þú bendir á: "Svo endar þetta alltsaman gjarnan með glórulausu fylliríi." séu eðlileg viðbrögð þjóðar sem flúið hefur óþolandi óheiðarleika stjórnmálamanna sinna og auðmanna inn í léttleikandi skáldskap Gnarrismans.

Svanur Gísli Þorkelsson, 29.12.2010 kl. 12:07

9 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Mjög athyglisverður pistill hjá þér Svanur Gísli.

Í fyrsta lagi A: áramótin eru ekki komin. Kannski ég bæti mig. Sýnist að samið hafi verið um að stjórnarkreppu verði a.m.k. frestað til næsta árs. Held að allsherjarupplausn sé ekki yfirvofandi. Hvort æðruleysi sé bara annað nafn á sinnuleysi er mikilvæg spurning. Bloggsvar við henni er kannski ekki til. Reyni kannski að taka eitthvað af þessu til umfjöllunar í næstu bloggum.

Gleðilegt ár.

Sæmundur Bjarnason, 29.12.2010 kl. 13:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband