2767 - Er feminismi vinstri stefna?

Las í morgun bréf útaf úrskurði Umboðsmanns Alþingis um lagatúlkun Tryggingastofnunar Íslands og í Fréttablaði dagsins sé ég að þetta er orðið að forsíðuefni þar. Ekki veit ég neitt um efnisatriði þessa máls umfram það sem komið hefur fram í fréttum og bréfum, en greinilegt er að ýmsir aðilar, bæði einstaklingar og samtök eru farin/farnir (hvort eru það aðilarnir eða samtökin sem eiga að stýra þessu) að líta á Umboðsmanninn sem einskonar dómstól. Kannski er ekki vanþörf á því í viðskiptum við ríkið því eðlilegt er að flestir hasist upp á því að eiga við dómstóla þessa lands og lögfræðingastóðið sem virðist geta teygt og togað lög og reglugerðir í ýmsar áttir. Þar að auki er afskaplega dýrt að eiga við þá aðila og mál geta tekið mörg ár.

Stofnanir ýmisskonar (Tryggingastofnunin er ekki ein um þetta) virðast vera orðnar einskonar ríki í ríkinu og túlka lög og reglugerðir sem mest sér í hag. Ráðuneyti og aðrir aðilar sem ættu að geta skipað þeim fyrir nenna ekki að sinna neinu sem máli skiptir. Starfsmenn þar eru sennilega of uppteknir við að naga blýanta. Allaf þurfa Íslendingar að haga sér eins og þeir séu stórþjóð en ekki minni en flest sem lítið er.

Þessar tvær klásúlur sem hérna eru fyrir ofan setti ég á fésbókina síðastliðinn mánudag, því mér fannst á þessu liggja. Einsog kunnugt er þá lifa margir fyrir fésbókina og ég veit ekki hvort ég hef sömu lesendur þar og hér. Allavega hef ég vanið mig á að auglýsa innlegg á þennan vettvang á fésbókar-ræksninu og auk þess set ég stundum sama efni þar og hér.

Alveg finnst mér það síðasta sort (einsog Einar smiður í Borgarnesi sagði jafnan) að henda útum gluggann 87 milljónum í einhvern atburð sem afar fáir höfðu nokkurn áhuga á. Þetta létu alþingismenn véla sig til að gera. Sögðust vera að þessu til að minnast hundrað ára afmælis fullveldis þjóðarinnar. Það hefði verið hægt að gera öðruvísi.

Kannski er blessað bloggið að ganga í endurnýjun lífdaga. Margir eru í vaxandi mæli búnir að fá leið á fésbókinni. Enda er hún oft eins og hver annar kjaftavaðall. Sumir höfðu horn í síðu Moggabloggsins á sínum tíma. Vel má svosem halda því fram að það sé ekki alvörublogg, enda þarf ekkert fyrir því að hafa. Upphaflega er það sennilega hugsað sem vettvangur fyrir athugasemdir við fréttir og annað á mbl.is. Vinsældir þess voru miklar á tímabili en þegar fésbókinni fór að vaxa fiskur um hrygg og Davíð tók við stjórnartaumunum á Moggableðlinum fóru margir þaðan. Kannski koma þeir aftur í fyllingu tímans.

Sennilega er „MÍTÚ-byltingin“ að komast á nýtt stig. Til þess benda orkuveitumálin og hæstréttadómaramálið í Bandaríkjunum. Eftir því sem konur standa betur saman eykst pólitískt vald þeirra. Ekki stöndum við Íslendingar neitt sérlega illa þar. Þó má alltaf gera betur. Ekki er hægt að mótmæla því að konum hefur verið haldið verulega niðri á undangengnum áratugum og víða er svo enn. „Feministar allra landa sameinist“ Vinstrisinnar víðast hvar í heiminum geta í aðalariðum tekið undir þetta.

IMG 7805Einhver mynd.


Bloggfærslur 19. september 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband