2745 - Hægri og vinstri

Hulda Indland, hver er nú það? Það er alltaf verið að tala um hana í sjónvarpinu. Ekki kannast ég við hana og fésbókin ekki heldur. Er hún þá til? Kannski ekki. Aumlegur útúrsnúningur atarna. Ætli það sé ekki bara verið að auglýsa sjónvarpsþátt um Indland.

Ómótmælanlegt er að Bandaríska ríkisstjórnin reynir með hótunum og öðru þessháttar að hafa áhrif á þær þjóðir innan sameinuðu þjóðanna sem veikastar eru fyrir. Mannréttindi eru þeirri stjórn lítils virði. Einangrunar- og tollastefna Trumps er svo annar kapítuli, sem ekki verður ræddur hér. Bandaríska ríkisstjórnin, og þó einkum Trump sjálfur, virðist álíta að bandaríkin geti gert, í krafti auðs síns og áhrifa, hvað sem er. Svo er þó ekki og fyrr eða síðar verður bandaríkjamönnum sýnt ótvírætt hvar þeir eiga heima. Auður þeirra og áhrif eru ekki frá Guði, heldur hafa aðrar þjóðir hingað til sætt sig við yfirgang þeirra. Kóngarnir í Evrópu töldu áður fyrr að völd sín væru frá Guði komin, en fyrir löngu er búið að leiðrétta þá lygi.

Kommúnistar álíta alla andstæðinga sína kapítalista og kapítalistar álíta alla sem ekki fallast á þeirra sjónarmið vera kommúnista. Hægri og vinstri ásamt kommúisma og kapítalisma finnst mér einkum snúa að ríkisafskiptum. Öfgarnar ber samt að forðast eða varast a.m.k.  Miðjumoðið er farsælast til lengdar. Auðvitað er þetta einföldun. Snýst ekki öll pólitík um einfaldanir? Það hefur mér sýnst. Vel er hægt að halda því fram að hægri og vinstri skiping eftir þessu sé úrelt. Sumir hafa talað um opingáttar- og einagrunarstefnu. Kannski er hún réttari. Afstaðan til flóttamanna er farin að skipta mjög miklu máli hér á Vesturlöndum. Annars er öll pólitík hálfleiðinleg. Vel er hægt að komast hjá henni í flestum málum. Allir þeir sem til áhrifa komast virðast vilja vel.

Sveiflurnar í lesendafjölda hjá mér undanfarna daga eru talsverðar, eða frá 5 til 330 er fjöldi þeirra sem leggur það á sig að fara inná Moggabloggið mitt. Auðvitað skrifa ég ekki daglega en samt eru þetta talsvert miklar sveiflur finnst mér. Ég er ekki vanur svonalöguðu. Ekki er þó um annað að ræða en sætta sig við þetta. Kannski verður þetta til þess að maður fer að skrifa oftar. Með því verða bloggin samt óttaleg þunnildi. Mér finnst ég þurfa að tæpa á allnokkrum málum í hverju bloggi.

NATO-aðildin hefur á flestan hátt komið sér vel fyrir okkur Íslendinga. Finnst mér. Ef við eigum að stórauka hernaðarútgjöld okkar mikið finnst mér það koma til greina prósentvís en ekki annars. Með því að kúpla saman smæð okkar og aðildinni að NATO höfum við hingað til getað notið flestra kosta við aðild án þess að leggja mikið á móti.

Er öll þessi vitleysa í kringum Trump bandaríkjafoseta kannski einn risastór gjörningur? Við vitum að hann þrífst á því að vera í fréttum og á milli tannanna að fólki. Ekki er að sjá að það skipti hann máli hvort umfjöllunin um hann er jákvæð eða neikvæð. Umfjöllunin er allt.

IMG 7955Einhver mynd.


Bloggfærslur 13. júlí 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband