2717 - Vorið góða grænt og hlýtt.

Nú er vorið greinilega komið. Grasið að verða grænt. Trén í óða önn að laufgast. Bráðum verður farið að hamast við að slá hérna í kringum blokkirnar. Lúpínan er farin að láta smávegis á sér kræla o.s.frv. Ætli sumarið verði bara ekki gott. Gróðapungarnir hafa samt áhyggjur af því að túristunum fjölgi ekki jafnhratt og áður. Mér er sama. Einhver strá verða líka fegin.

Man eftir vítissóda í búðum og ódýru ærhakki. Sælgæti og gosdrykkjum sem voru allt öðruvísi á Akureyri en í Reykjavík. Man líka eftir malbikaða spottanum þar sem nú er Bæjarháls. Hann var frá því á stríðsárunum og ósléttur mjög – mjúklega samt. Þegar þangað var komið (frá Hveragerði) var maður talsvert farinn að nálgast Reykjavík. Man líka eftir Dýrlingnum í sjónvarpinu. Hann er víst dáinn úr elli núna.

Á undan sjónvarpinu var útvarpið allra leiðinda bót. Þar voru mörg gullkornin sem borin voru á borð. Man eftir framhaldsleikritinu sem hét: „Hver er Gregory?“ Á það var hlutstað með mikilli innlifun. Man þó ekki gjörla um hvað það var.

Og bíóin maður. Eiríkur og Sigga á Hótelinu ráku „Nýja Ferðabíóið“ og seldu miðann á 3 krónur gamlar og þótti mikið. Og það var reykt og reykt í bíóinu. Verst hvað birti í salnum meðan logaði á eldspýtunni. Litmyndir voru mjög sjaldgæfar. Hátíð þótti ef danskir skýringartextar voru á myndunum. Engum datt í hug að fara fram á íslenska texta.

Í gærmorgun fór ég í gegningar uppí Melahverfi. Þá var bara einn búinn að lesa bloggið mitt þann morguninn. Þegar ég kom til baka voru þeir orðnir 35. Mér finnst sú tala frekar há. Kannski finnst sumum hún lág, en við því er ekkert að gera. Í gær var fössari eins og krakkarnir segja og eins og venjulega var ég í skásta stuðinu til þess að blogga þegar ég er nýbúinn að setja blogg í eterinn og ég byrjaði á þessu bloggi þá.

Vel á minnst. Þetta með eterinn er athyglisvert. Kannski er það sama og ljósvakinn sálugi. Áður fyrr þótti mönnum það ómögulegt að ljós frá frá stjörnunum væri að flækjast í algjöru tómi. Þessvegna var ljósvakinn fundinn upp. Atmosfer, jónosfer, stratosfer, Sigurður fer, sem betur fer. Ætli það hafi ekki verið Sigurður með skotthúfuna, sá sem kvað svo listilega um hana Maríu. Svona þvælist hugsunin fram og aftur og getur ekki stöðvast við neitt.

Kannski verður þetta mál með þá 17 sem skráðu lögheimili sitt í Árneshreppi stærsta málið fyrir þessar kosningar. Hugsanlegt að þetta tengist virkjanaáformum. Segi bara svona.

IMG 8216Einhver mynd.


Bloggfærslur 12. maí 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband