845 - Um Loft, Jón og ýmislegt annað

Nú er hamast við að endurvekja útrásartraustið og taka margir þátt í því. Útrásarvíkingarnir ætla sér að komast aftur til valda.

Umrætt er meðal bloggara hvernig Morgunblaðið hagar sér. Birtar hafa verið glefsur úr bloggfærslum eða athugasemdum Lofts Altice Þorsteinssonar og Jóns Vals Jenssonar og hneyklast á þeim. Ég hef lent í skrifklónum á þeim báðum og veit að þeir svífast einskis. Samt mundi ég í sporum Moggabloggsstjórnenda hika við að loka á þá. Að loka á umræðu vil ég forðast í lengstu lög. Einhvers staðar verður þó að setja mörkin. Ummæli þeirra um Jóhönnu og Steingrím eru þannig að engin furða er þó fólki ofbjóði.

Vinstri menn sumir ætlast til að lokun bloggs Halldórs Egilssonar verði tekin aftur. Hann er sagður vera litli landssímamaðurinn sem umtalaður varð fyrir nokkrum árum og á að hafa skrifað illa um Baldur Guðlaugsson í blogg-grein sem nefnd er „Skinheilagur innherjasvikari". Ég hef því miður ekki séð þá grein og ekki nein málefnaleg rök fyrir því að vegna hennar hafi bloggi Halldórs verið lokað.

Ef hrunflokkarnir hefðu fengið ráðningu í hlutfalli við það sem þeir áttu skilið í síðustu kosningum hefði öðruvísi ríkisstjórn verið mynduð að þeim loknum. Ríkisstjórn sem enga ábyrgð hefði borið á bankahruninu.

Slík ríkisstjórn hefði getað sett sig á háan hest og neitað öllum samningum, bæði um Icesave og annað. Sú ríkisstjórn sem nú situr ber að talsverðu leyti ábyrgð á hruninu og vill að sjálfsögðu semja. Væru Sjálfstæðis- eða Framsóknarmenn í stjórn núna mundu þeir auðvitað vilja semja eins og skot. Þetta vita allir en flokkshestar viðkenna það ekki ótilneyddir.

Stjórnmálin á Íslandi eru þannig að tvískinnungur af þessu tagi þykir eðlilegur. Oftast er mikilvægara að valda andstæðingnum hörmungum en gera það sem eflir þjóðarhag.

Fyrir neðan blogg Eiríks Jónssonar á dv.is stendur eftirfarandi:

Ath: Eldri athugasemdir eru birtar hér fyrir neðan, en hér eftir verður aðeins hægt að skrifa athugasemdir með Facebook aðgangi.

Á endanum verð ég eflaust að slaka á klónni varðandi Facebook. En fleiri beita ofbeldi en Davíð.

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Jón Valur hefur reyndar tekið út verstu orð Lofts sem hann setti á síðu hans. En orðin hafa birst á fleiri bloggsíðum. Loftur segir að orð sín séu líkingar. En þau eru engar líkingar. Þau eru þvert á móti mjög hrein og bein.

Sigurður Þór Guðjónsson, 26.10.2009 kl. 00:21

2 Smámynd: Kama Sutra

Er það orðinn kækur hjá Lofti þessum að bjóða fólki upp á það að verða hengt upp í staura?  Kannski er þetta hans uppáhalds aðferð við óþægt fólk, sem er honum ósammála.  Sjá athugasemd á þessu bloggi:

http://bjorgvin.eyjan.is/loftur_endurtekur.htm

Kama Sutra, 26.10.2009 kl. 01:35

3 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Sæll Sæmi.

Ég var svo sem varaður við að birta þessa færslu um Loft. En nú ber svo við að Jón Valur heldur sig fjarri öllum umræðum og vill sjálfsagt ekki blanda sér neitt frekar í málið. Loftur skammast í athugasemdum sínum bara út í stjórnina og kallar mig bara "kjánaprik" og heldur að málið sé afgreitt :)

Svanur Gísli Þorkelsson, 26.10.2009 kl. 01:40

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Svanur Gísli. Ég hef svosem tekið eftir orðbragðinu hjá Lofti fyrr og lent í deilum við Jón Val og Villa í Köben. Er samt ekkert viss um að þessir menn séu leiðinlegir í viðkynningu. Kunna sér bara ekkert hóf þegar þeir setjast við skriftir.
Hvert skyldi Moggabloggið vera að stefna? Öll samskipti hérna eru einföld og auðveld og ég sé eftir því ef það hverfur.

Sæmundur Bjarnason, 26.10.2009 kl. 01:57

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þeir ættu að skifta yfir í koffeinlaust blessaðir. Jafnvel fleiri. Eigum við ekki að vona að þeir hafi fengið áminningu fyrir að hrökkva svona af skaftinu.

Verst er að þeir eru ekki að gera málstað sínum greiða og það ermiður því ég er að megninu sammála þeim um efnisatriðin.

Jón Steinar Ragnarsson, 26.10.2009 kl. 05:24

6 identicon

Mér datt nú í hug gömul og þekkt vísa þegar menn ræða mikið um Loft:

Þráði Loft og þurfti loft
þunga af Lofti bar hún.
uppi á lofti upp í loft
undir Lofti var hún.

Og það var nú það.

Ellismellur 26.10.2009 kl. 08:30

7 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Þetta er ekki ósvipað orðbragð og margir pólitískir andstæðingar Lofts notuðu fyrir um ári síðan, þótt það sé engin afsökun.  Annars tek ég undir með Jóni Steinari.

Axel Þór Kolbeinsson, 26.10.2009 kl. 09:44

8 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Axel Þór: Mér finnst það eins og hver önnur smjörklípa að slengja svona fram.
Hver eða hverjir voru það sem töluðu svona um Loft?

Sæmundur Bjarnason, 26.10.2009 kl. 12:45

9 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Ekki um Loft sjálfann, heldur þáverandi ráðamenn, seðlabankastjóra og yfirmanni fjármálaeftirlitsins.

Ég er ekki að verja orð Lofts, ekki frekar en þau orð sem féllu hér á mörgum bloggsíðum fyrir ári síðan.  Ég var bara að setja orðin í sögulegt samhengi.

Axel Þór Kolbeinsson, 26.10.2009 kl. 12:53

10 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Smjörklípunni smurði þykkt.
Smettið þurfti að laga.
Enga samt hún átti vigt
og ekki var til baga.

Sæmundur Bjarnason, 26.10.2009 kl. 13:47

11 identicon

Ég er síðasti maður til að fara fram á ritskoðun.. en ég hlýt að geta sett fram réttmæta kröfu með að mitt blogg opni aftur...  ég er eins og lítið lamb miðað við þessa kumpána ... :)
Ég get ekki séð að mbl geti annað en opnað bloggið mitt aftur, nema þeir vilji vera eins og asnar .. hehe

DoctorE 26.10.2009 kl. 15:24

12 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Það er rétt Sæmi að tæknilega viðmótið á blog.is er miklu betra en á öðrum bloggsvæðum og það er enn víðlesnasta bloggið, almennt séð.  - En hvert það stefnir er ekki gott að segja. - Það er alveg fyrirséð að á þeim bloggsvæðum sem aðgangur er ótakmarkaður mun öfgafólk koma sér fyrir og freista þess að koma frá sér boðskapnum og reyna á þolmörk reglana sem gilda um svæðið. - Þau þolmörk hafa nú e.t.v. skolast til, með tilkomu pólitísks ritstjóra. Ég held að Halldór Egils hefði allavega fengið tilmæli um að taka pistilinn af síðunni, hér áður, í stað þess að loka á hann fyrirvaralaust.

Svanur Gísli Þorkelsson, 26.10.2009 kl. 15:24

13 identicon

Wordpress er miklu betra kerfi... en náttlega ekki eins sýnilegt á íslandi og moggabloggið

DoctorE 26.10.2009 kl. 15:31

14 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Kannast vel við vísuna sem Ellismellur tilfærir. Er í mínum huga gömul klámvísa og hugsanlega um Galdra-Loft upphaflega. Minnir að fyrsta ljóðlínan sé samt svona: Hún elskaði Loft, hún þráði Loft...

Sæmundur Bjarnason, 26.10.2009 kl. 15:33

15 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

DoktorE: Ég er á móti ritskoðun eins og þú veist.
Svanur Gísli ég er alveg sammála þér. Vona samt að öfgafólk nái ekki tökum á okkar blgggsvæðum.

Sæmundur Bjarnason, 26.10.2009 kl. 15:37

16 Smámynd: hilmar  jónsson

Hægra öfgafólk er nú þegar orðið aðlasmerki mbl.is bloggsins.

hilmar jónsson, 26.10.2009 kl. 16:26

17 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Hilmar, hægra öfgafólk? Hvernig útskýrirðu þá að mínir pistlar fái reglulega birtingu á forsíðu mbl.is? Ekki er ég öfgamaður og þó ég hafi sögulega hneigst til hægri þá er í besta falli vafamál að sú tilhneiging sé hreinræktuð.

Guðmundur Ásgeirsson, 27.10.2009 kl. 11:24

18 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Guðmundur. Við erum ekki aðalsmerki Moggabloggsins.

Sæmundur Bjarnason, 27.10.2009 kl. 13:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband