842 - "Nei, þetta er of þröngt"

Í athugasemdum hjá Eiði Svanberg Guðnasyni við bloggfærslu sem hann nefnir: „Mola um  málfar og miðla 181" eru markverðar gæsalappapælingar og bendi ég áhugamönnum á þær. Eiður ræðir auk þess um málfar og framburð en á því hef ég mikinn áhuga. Málfar íþróttafréttamanna er oft til umræðu. Málfar þeirra er gjarnan óvandað en afsakanir fyrir því er oftast auðvelt að finna. 

Stundum liggur þeim mikið á og þá verða til orðskrípi eins og „himstrakeppi" sem á víst að þýða heimsmeistarakeppni. Stundum liggur þeim hins vegar lítið á og hafa lítið að segja og þá verða til fjólur eins og „Markvörður Íslands spyrnir nú frá marki sínu" (það yrði aldeilis upplit á mönnum ef hann spyrnti frá marki andstæðinganna). Þegar sókn upp miðjuna mistekst þá er gjarnan sagt og andvapað þungt. „Nei, þetta er of þröngt."

Kiljan í gærkvöldi (miðvikudag) var áhugaverð. Þar ræddi Egill Helga við Bjarna frænda um nýútkomna skáldsögu hans og að auki við Eyþór Árnason sem ég þekki dálítið frá veru minni á Stöð 2.

Heilmikill taugatitringur er nú á blogginu vegna þess að Björn Bjarnason sjálfur gagnrýnir Egil Helga ótæpilega fyrir blogg sitt og fleira. Ég get ekki að því gert að mér finnst Egill vera orðinn fulláberandi án þess að ég vilji eitthvað vera að gagnrýna hann. Silfrið horfi ég oft á og mér finnst alls ekki hægt að gagnrýna val hans á viðmælendum þar. Auðvitað hefur hann skoðanir á málum. Skárra væri það nú. Það gerir BB líka. Sá í dag fyrirsögn á Mbl.is sem var einhvern vegin svona: „Björn á skautum réðst á Sirkusstjóra." En hún var víst ekkert um þetta mál.

Í kastljósi kvöldsins var appelsínuhúð frestað til morguns af óviðráðanlegum orsökum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eygló

""Björn á skautum réðst á Sirkusstjóra." (skellti uppúr hérna) "appelsínuhúð frestað til morguns"" (dásamleg athugasemd)

Segi ekki orð um þetta meir, en þetta er m.a. ástæðan fyrir því að ég vil hafa þig svona allavega í nándinni 

Eygló, 23.10.2009 kl. 00:10

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég er sammála þér með að Egill er fulláberandi nú um þessar mundir.  En svona erum við Íslendingar, við erum skorpufólk og tökum líka fyrir ákveðna einstaklinga hömpum þeim eða hendum út í hafsauga.  Það sem við þurfum að læra er að hætta þessari ákafamennsku.  Þetta á sér örugglega einhvern uppruna í hvernig við höfum búið sem þjóð í landi, þar sem við höfum þurft að flýta okkur að ná inn heyjum undan rigningunni eða bjarga eigum undan vetrinum og svo framvegis.  Skorpuþjóð, það er það sem við erum. 

Það kemur alltaf maður í mannsstað og einn daginn gleymum við Agli og tökum inn næstu stjörnu til að dýrka.   Og svo framvegis......

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.10.2009 kl. 10:45

3 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Ég tek ekki undir, að um sé að ræða einhverja stjörnudýrkun. Held meira að segja að flestir láti sér í léttu rúmi liggja hvað sagt er á blogginu. En Egill hefur atvinnu af því að blogga á Eyjunni og til að standa undir launakostnaði verður hann að plögga til að  auka aðsókn að miðlinum sem aftur skilar auglýsingatekjum til aðstandenda Eyjan.is

p.s afsakaðu slettuna Sæmundur, okkur vantar íslenskt orð yfir enska orðið plug

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 23.10.2009 kl. 12:09

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk Eygló.
Ásthildur ég er sammála þér um ákafamennskuna. Í næstu skorpu þurfum við að einhenda okkur út úr kreppunni. Það getum við.
Jóhannes já, þetta er rétt með plöggið. Stundum verða útlend orð bara íslensk með tímanum. Kannski er þetta þannig.

Sæmundur Bjarnason, 23.10.2009 kl. 13:27

5 Smámynd: Finnur Bárðarson

Hverjum stendur ekki á sama hvað Birni finnst ? Hann er ekkert númer lengur. Bara meðalbloggari úti í bæ.

Finnur Bárðarson, 23.10.2009 kl. 16:38

6 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Jú, jú, Finnur. BB hefur áhrif. Hann er núna þáttastjórnandi á ÍNN og fyrrverandi ráðherra. Sumt hefur mistekist hjá honum en hann er hreint ekki áhrifalaus.

Sæmundur Bjarnason, 23.10.2009 kl. 17:18

7 identicon

Hæ Sæmundur, sendi þér línu sem var umsamið,

Sigurbjörn Bjarnason 23.10.2009 kl. 21:03

8 Smámynd: Brattur

Eitt finnst mér alltaf kjánalegt hjá íþróttamönnum en það er þegar þeir segja;

"Hann var góður eftir að hann kom inn á "

Brattur, 23.10.2009 kl. 23:33

9 Smámynd: Eygló

... betri á bekknum þó...

Eygló, 23.10.2009 kl. 23:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband