808 - Bless Borgarahreyfing

Ég verð að viðurkenna að ég kaus Borgarahreyfinguna í síðustu kosningum. Auk þess er ég búsettur í Kópavoginum og ber því einhverja ábyrgð á því að Þór Saari situr á þingi. Ekkert eitt atriði hefur styrkt fjórflokkinn jafnmikið í sessi að undanförnu og það slys. Ekkert er við því að gera úr því sem komið er. Líklegast er að ég kjósi í næstu kosningum einhvern af fjórflokkunum beint eða kjósi ekki.

Hvers vegna hefur kosning Þórs Saari styrkt fjórflokkinn kynni einhver að spyrja? Því er fljótsvarað. Næstu áratugina mun fólk gera ráð fyrir því með réttu eða röngu að ný framboð séu lík Borgarahreyfingunni að því leyti að alls óvíst sé hvernig þingmenn þeirra reynist og þess vegna forðast að kjósa þau.

Orkubloggarinn Ketill Sigurjónsson er sannarlega orkumikill. Blogg hans eru fróðleg og góð. Greinarnar langar og ítarlegar. Langoftast er ég sammála honum en reyni þó að horfa á það gagnrýnum augum sem hann skrifar.

Rætt er um að Páll Baldvin Baldvinsson verði Þjóðleikhússtjóri. Mér líst vel á það. Páli kynntist ég nokkuð þegar ég vann með honum á Stöð 2. Ekki verður logn og ládeyða í kringum embættið ef Páll fær það. Skylmingar hans og Kolbrúnar Bergþórsdóttur í bókmenntaþættinum Kiljunni eru oft skemmtilegar. Að vera í vinsælum sjónvarpsþætti og á allra vörum landar mönnum oft góðum embættum.

Rætt var um rímnakveðskap í síðustu Kilju. Rímnakveðskapur er bráðskemmtilegur ef hann skilst sæmilega en annars er hann hundleiðinlegt þrugl. Ætlast er þó til að hann þyki ævinlega fínn því hann er í tísku núna.

Ágúst Borgþór, sem sjálfur er úrvalsbloggari, sagði einhverntíma á sínu bloggi að það væri hvíld frá alvarlegri skrifum að blogga og meinti örugglega að hann vandaði sig síður við það en önnur skrif. Fyllsta ástæða er samt til að vanda sig við bloggskrif. Einkum ef þau eru það skásta sem maður gerir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég held að þetta sé alveg rétt athugað hjá þér að þetta brölt Borgaarahreyfingarinnar verði til að styrkja fjórflokkinn. Og b.t.w. ég held að Páll Baldvin eigi ekki eftir að verða Þjóðleikhússtjóri. Hann er ekki nógu sviplaus og persónulaus. Ráðherrar skipa ekki svona róttæka menn eins og hann. Þeir vilja bara aumingja. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 19.9.2009 kl. 01:21

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Já, en Sigurður er ekki ráðherrann sjálfur dálítið róttækur í þessu tilfelli? Ég hef alveg trú á að Páll verði Þjóðleikhússtjóri.

Sæmundur Bjarnason, 19.9.2009 kl. 01:33

3 Smámynd: Yngvi Högnason

Gúmoren hér. Skrifaði smávegis um Þjóðleikhússtjórann í júnílok og er enn sama sinnis.
http://yngvii.blog.is/blog/yngvii/entry/906012/

Yngvi Högnason, 19.9.2009 kl. 09:33

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Yngvi, alveg sammála þér með þetta. Hef samt lítið fylgst með þessu máli og veit ekki einu sinni hvenær því verður ráðir til lykta.

Sæmundur Bjarnason, 19.9.2009 kl. 09:50

5 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég er ekki alveg að skilja af hverju fólk er á móti Þór Saari ?

Gunnar Helgi Eysteinsson, 19.9.2009 kl. 09:58

6 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Gunnar Helgi, það sem ég hef aðallega á móti Þór Saari er að þegar ESB málið var til umræðu auglýsti hann bókstaflega að atkvæði Borgarahreyfingarinnar væru til sölu. Einnig virðist hann hafa úrslitaáhrif á það hvaða ákvarðanir Birgitta og Margrét taka. Svo er myndun Hreyfingarinnar og fjandskapurinn við Valgeir Skagfjörð rangur að mínu mati.

Sæmundur Bjarnason, 19.9.2009 kl. 10:10

7 Smámynd: Óskar Þorkelsson

ég tek undir með Sæma í greiningunni á Þór Saari.. ég slettaði bloggið hans því ég nennti aldrei að lesa það sem hann skrifaði eftir að hann auglýsti atkvæði borgarahreifingarinnar til sölu opinberlega sl sumar.

Óskar Þorkelsson, 19.9.2009 kl. 10:54

8 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Óskar ég er alveg sammála þér. Les samt gjarnan það sem þau Þór og Birgitta skrifa um þingstörfin því það er oft fróðlegt.

Sæmundur Bjarnason, 19.9.2009 kl. 12:11

9 identicon

Tek undir með þér Sæmundur, ég kaus Borgarahreyfinguna vegna þess að ekkert annað var í boði. Nú er það atkvæði horfið út í buskann.

Þröstur Ingólfur Víðisson 19.9.2009 kl. 13:20

10 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Þröstur, já það er lítið við þessu að gera. Samt er mögulegt að viðhorfin verði önnur þegar dregur að næstu kosningum.

Sæmundur Bjarnason, 19.9.2009 kl. 13:33

11 Smámynd: Sigmar Þormar

Kjósið bara VG

Látið ykkur bara að kenningu verða Sæmundur, Þröstur ofl.

VG hefur nú þegar unnið ómetanlegt starf við að draga þjóðfélagið upp úr drullu nýfrjálshyggju.  Vissulega erum við margir kjósendur VG ekki ánægðir með allt í Samfylkingarsamstarfi. En mikill munur er eðlilegum skoðanaskiptum innan flokksins og farsa Borgarhreyfingar.

Sigmar Þormar, 19.9.2009 kl. 15:38

12 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Sigmar, VG er nú bara einn fjórði af fjórflokknum og ekkert endilega betri, nema á sumum sviðum. Minnst skemmdur af bankahruninu að vísu, en eru ekki bara allar gömlu klisjurnar að öðlast líf að nýju?

Sæmundur Bjarnason, 19.9.2009 kl. 16:08

13 Smámynd: Kama Sutra

Yfirlýsing:  Borgarahreyfing ei meir fyrir mig.  Í næstu kosningum mun ég kjósa Evrópuflokk.

Kama Sutra, 19.9.2009 kl. 16:38

14 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Já, en Kama Sutra við erum bara tvö. Það voru svo margir sem kusu Borgarahreyfinguna en verða nú að snúa sér að fjórflokknum. Það er ekkert víst að flokkarnir þar geti allir ákveðið sig varðandi Evrópumálin. Svo er ekkert vinsælt að vera hlynntur ESB akkúrat núna.

Sæmundur Bjarnason, 19.9.2009 kl. 16:54

15 Smámynd: Kama Sutra

Ég er með miðlungs breitt bak og er að reyna að koma mér upp þykkum skráp.  Ég ber það auðveldlega að vera ESB-sinni mitt í allri Evrópufóbíunni.

Kama Sutra, 19.9.2009 kl. 17:09

16 Smámynd: Jón Kristófer Arnarson

Það er fullreynt með þessa þrjá þingmenn en er fullreynt með Borgarahreyfinguna?

Ég er svo bjartsýnn að ég held að nú gefist tími til að byggja upp öfluga valddreifða stjórnmálahreyfingu.  Nýja stjórnin er skipuð hörku fólki sem nú er reynslunni ríkara.  Enn eru um 600 manns skráð í hreyfinguna og ég hef trú á að við séum rétt að byrja.  Skora á Sæmund Bjarnason og ykkur hin að taka þátt í endurreisninni með okkur í Borgarahreyfingunni.

Jón Kristófer Arnarson, 19.9.2009 kl. 17:57

17 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk Jón Kristófer.
Man að það var einkum Valgeir Skagfjörð sem vakti athygli mína fyrir skeleggan málflutning í kosningabaráttunni fyrir síðustu kosningar. Skilst að hann sé enn í Borgarahreyfingunni, svo kannski er einhver von.

Sæmundur Bjarnason, 19.9.2009 kl. 19:01

18 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Ég vona svo sannarlega að þessi vandræðagangur Borgarahreyfingarinnar hafi ekki látið fólk missa alla trú á ný framboð því það skulu vera fleiri en fjórflokkurinn í boði í næstu kosningum, og Samtök Fullveldissinna eitt þeirra.  Ólíklegt þykir mér þó að nokkur þeirra sem hér skrifar muni kjósa það framboð.

Axel Þór Kolbeinsson, 21.9.2009 kl. 09:29

19 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

hehe. Aldrei að segja aldrei. Kannski Davíð fari bara á þennan lista þegar hann verður búinn að gera endanlega útaf við Moggatetrið.

Sæmundur Bjarnason, 22.9.2009 kl. 00:15

20 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Úff, æ nei.  Davíð ætti bara að slappa af og skrifa smásögur.

Axel Þór Kolbeinsson, 22.9.2009 kl. 08:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband