786 - kjosa.is

Nú er kannski kominn tími til að dusta rykið af kjosa.is. Síðast þegar ég vissi voru meira en 3200 búnir að skrifa sig á þann lista. Kannski eru flestir búnir að gleyma því en þetta vefsetur var stofnað fyrir allnokkru þegar umræðan um Icesave var á frumstigi. Í sem allra stystu máli er þetta áskorun á forseta vorn um að skrifa ekki undir lögin um Icesave ríkisábyrgðina. Sjá nánar á vefsetrinu sjálfu.

3200 er auðvitað ekki mikill fjöldi en ef þeir sem hæst hafa látið útaf Icesave undanfarið hvetja nú alla til að skrifa sig á þennan lista kann þeim að fjölga.

Tónninn í stjórnmálaumræðu hér á landi hefur breyst að undanförnu. Netið á sinn þátt í því. Umræðan þar er ákaflega óvægin. Bloggarar eru mestan part vinstri sinnaðir og gjarnir á að halda að allt sem þeir lesa og segja sé undantekningalaust satt og rétt. Prófkjör og kosningar sýna vel vanmátt bloggsins. Vegur þess fer þó vaxandi og margir lesa greinar þar sér til gagns.

Jón Valur Jensson skrifar mikið á sitt blogg um fréttir dagsins en einkum þó um Icesave og ESB. Þar minnist hann oft á að Jón Sigurðsson forseti hefði gert þetta eða hitt ef hann væri á lífi og fengi að ráða.

Ég er sannfærður um að Jón Sigurðsson hefði verið fylgjandi aðild að ESB. Annars vil ég helst ekki ræða mikið um þetta mál því þá er hætta á að svarhalarnir lengist úr hófi og úr verði þrætubók af versta tagi.

Andstæðingar aðildar segja jafnan að fullveldi og sjálfstæði landsins sé lokið ef af aðild verður og þeir sem slíku mæli bót séu örgustu landráðamenn og svikarar. Þessu verðum við ESB-sinnar að sitja undir en sagan mun dæma um réttmæti þessara fullyrðinga og ekki kvíði ég þeim dómi.

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

Nonni Sig hefði fundið upp ESB, hefði honum endst aldur til.

Brjánn Guðjónsson, 28.8.2009 kl. 00:09

2 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Ég er líka viss um að Jón Sigurðsson hefði verið sammála mér í einu og öllu og hann hefði snúið sér við í gröfinni ef hann væri á lífi núna.

Emil Hannes Valgeirsson, 28.8.2009 kl. 00:16

3 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Dóra litla, ég hef ekkert sagt um nauðsynina. Sótt hefur verið um aðild og að því kemur að þeir sem kjósa að taka þátt í þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta þurfa að taka afstöðu. Margir eru þegar farnir að velta fyrir sér valkostunum.

Sæmundur Bjarnason, 28.8.2009 kl. 01:23

4 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Það væri nú ekki amalegt ef það væri hægt að koma lögum yfir sumt af því sem viðgengst á Íslandi í tengslum við venslafyrirgreiðslu og fjárfestinga-krosstengsl í fyrirtækjum og stofnunum. Íslendingar munu aldrei taka á því þjóðarmeini sjálfir. Ef að það mundi breytast við ESB væri aðild tilvinnandi.

Þakka þér annars Sæmundur fyrir fína pistla upp á síðkastið sem áður.

Svanur Gísli Þorkelsson, 28.8.2009 kl. 02:30

5 Smámynd: Kama Sutra

Ég er eiginlega farin að líta á það sem extra bónus við það að ganga í ESB - að Ísland missi fullveldið.  Vonandi gerist það.

Kallið mig bara landráðamanneskju...

Kama Sutra, 28.8.2009 kl. 02:39

6 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk öll. Það eru líklega örlagatímar sem við lifum á. Meira að segja knattspyrnulandsleikir verða smámál.

Sæmundur Bjarnason, 28.8.2009 kl. 05:10

7 identicon

Vel 6. þúsund (með þeim sem hafa skrifað undir áskorun á eyðublöðum) eru búin að skora á forsetann - og fer ört fjölgandi.

www.kjosa.is 

Við eigum stjórnarskrá. Beitum henni. Ellegar hættum að væla.

Rómverji 28.8.2009 kl. 20:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband