751- Ekki má nú mikið

Búið er að loka bloggi Arnars Guðmundssonar hér á Moggablogginu. Hann var nokkrum sinnum búinn að kommenta hjá mér og ég skildi ekki kommentin hans almennilega. Þau voru samt stutt og trufluðu mig ekki mikið. Sá samskonar komment frá honum annarsstaðar líka og líklega hefur verið kvartað undan honum. 

ESB-umsóknin er sannkallað jarðsprengjusvæði. Hér er partur úr kommenti sem kom í kommentakerfið mitt:

Og það er vegna þess að það er sótt um ESB aðild án þess að spyrja þjóðina og sennilega líka í trássi við meirihluta þjóðarinnar, sem alls ekki vill ESB aðild. 

Fyrir stóran hluta okkar andstæðinga ESB aðildar snýst þetta ekki bara um hagsmuni heldur einnig tilfinningar.

Þess vegna er búið að setja eitraðan flein í hold þjóðarinnar og skipta henni uppí andstæðar fylkingar sem munu takast á.

Einmitt nú þegar helst hefði þurft að sameina þjóðina meðan við í sameiningu ynnum okkur útúr erfiðleikunum.

Ábyrgð þeirra 33ja íslendinga sem tóku þá ákvörðun að reka þennan eitraða ESB flein í hold þjóðarinnar er því mikil og enn meiri vegna þess að þeir höfnuðu því að þjóðin yrði fyrst spurð álits. 

Þetta er dæmi um það sem mér finnst vera óþarflega stóryrtar yfirlýsingar í þessu máli og fullyrðingar út í bláinn. Axel Þór Kolbeinsson segir að þetta eigi eflaust eftir að versna. Það er líklegt. Sjálfur hef ég ekki gætt mín nógu vel í þessu efni og egnt menn að óþörfu. Ég hef þó áður sagt að eins og ESB-málið blasir við mér núna er ég fremur hlynntur aðild. Það er þó engan vegin víst að svo verði eftir að samningur er kynntur.

Icesave er svo annað mál. Þar eru hlutir að verða svo heitir að best er að segja sem allra minnst.

Og nokkrar myndir.

IMG 3717Skófir á steini.

IMG 3739Leiðin niður í Arnarker.

IMG 3746Nei, þetta er of hættulegt.

IMG 3753Hér stöndum við og getum ekki annað. Náttúran er ekki hliðholl fíflum og kannski er fíflalegt að vera að flækjast hér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir myndirnar.

Dulla 23.7.2009 kl. 00:43

2 Smámynd: Arnar Guðmundsson

ÞAÞ ER KANNSKIK BUID AÐ LOKA BLOGGIN MÍNU EN EG ER EMNNÞA HÉRNA OG MÓTMÆI.. RITSKODUN RITSKODINN

Arnar Guðmundsson, 23.7.2009 kl. 13:20

3 identicon

Sæmundur, mér fannst þetta ekki of stórt til orða tekið hjá Gunnlaugi.  Það leiðinlegasta eru uppnefningar á fólki eins og "öfgalið" og þar fram eftir götunum.  Það er líka alltaf sama fólkið sem uppnefnir fólk með öndverðar skoðanir.  Það er líka munur á öfgamanni og "ofgaliði".  Það síðara er beint og klárt uppnefni eins og sumum er tamt.

Benjamín 23.7.2009 kl. 14:33

4 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Það vill svo skemmtilega til Sæmundur að ég var einmitt að ræða orðnotkun fólks við bróður þinn í gær.  Þótt ég hafi ekki ætlað að fara að benda á hvor hópurinn byrjaði á að uppnefna hinn þá varð mér hugsað til þess að um leið og ég opinberaði afstöðu mína varðandi Evrópusambandsaðild þá var farið að kalla mig afdalamann, einangrunarsinna og fleira sem ég hef aldrei viljað gangast við.

Svo mikill hiti var í umræðunni í Noregi þegar þeir fóru í gegnum aðildarferlið aðsumar fjölskyldur sundruðust vegna skoðanaágreinings.  Ég vona að þær fjölskyldur séu búnar að sættast í dag.

Axel Þór Kolbeinsson, 23.7.2009 kl. 17:06

5 Smámynd: Kama Sutra

Þýðir orðið "öfgalið" eitthvað annað en samansafn af öfgafólki (öfgamönnum) sem er saman í liði?

Kama Sutra, 23.7.2009 kl. 18:55

6 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Axel, ég á þrjá albræður og einn hálfbróðir. Veit ekki hvern þú ert að tala um.

Hver byrjaði finnst mér ekki skipta mestu máli. Heldur ekki hver uppnefnir hvern. Orð eru mjög mismunandi og þar að auki leggur fólk mismunandi skilning í þau. Ég er (eða var) dálítið viðkvæmur fyrir að vera kallaður landráðamaður en aðrir fyrir öðru.

Tek undir með þér að óþarfi er að láta þessi mál hafa of mikil áhrif á sig. Ef úrslit þjóðaratkvæðagreiðslu verða sæmilega afgerandi ætti að vera auðveldara með að sætta sig við hlutina.

Sæmundur Bjarnason, 23.7.2009 kl. 19:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband