726- Icesave - Er hægt að blogga um eitthvað annað?

Það er veist að mér fyrir að vera ekki á móti Icesave-samningnum á sama hátt og flestir aðrir bloggarar. Loopman kallar mig hálfvita og Lára Hanna svarar gagnrýni minni á skoðun hennar á þeim sem ekki mæta á Austurvallarfundi bara óbeint. Flestir aðrir reyna að leiða vitleysuna í mér hjá sér. 

Ég get ekki að því gert að ég finn flokkspólitískan fnyk af sumri gagnrýni á samninginn og væntanlegt frumvarp um ríkisábyrgð á ósómanum. Ég viðurkenni fúslega að auk þess að vera mikil svívirðing við okkur Íslendinga alla er samningurinn að auki til þess fallinn að auka andúð margra á aðildarumsókn að ESB. Gera ætti þó greinarmun þar á.

Ég hef líka unnið mér það til óhelgi meðal margra að vera meðmæltur aðild að ESB þrátt fyrir þvingunaraðgerðir þær sem augljóslega felast í Icesave-samningnum. Af þessu leiðir að ég er álitinn hægri sinnaður og nánast óalandi í bloggsamfélaginu, jafnvel hallur undir Samfylkinguna og ástæða fyrir fólk til að spýta þrisvar eftir að hafa lesið bullið úr mér.

Einfaldast væri auðvitað að minnast ekki á Icesave. Það er hins vegar aumingjaskapur hinn mesti í mínum augum. Einnig hitt, að þó Icesave-samningurinn verði að öllum líkindum felldur á Alþingi ef fer sem horfir, grunar mig að margir sem andmæla honum sem hæst séu einkum að nota kærkomið tækifæri til að klekkja á ríkisstjórninni.

Ég hef séð því haldið fram að verði Icesave-samningurinn felldur falli stjórnin líka. Þessu er ég ekki sammála. Ég held að Steingrímur og jafnvel Jóhanna líka verði því fegnust ef Icesave-vitleysan verður einfaldlega felld. Auðvitað geta þau ekki sagt það en sjálfsagt er að reyna að draga þetta mál svolítið á langinn.

Guðbjörn Guðbjörnsson er sjálfstæðismaður og ESB-sinni sem ég fylgist oft með á blogginu enda skrif hans vönduð. Hann segir meðal annars á sínu bloggi:

Ef þessi afskriftaleið samsæriskenningar minnar er ekki rétt og við eigum að borga þessar skuldir - 400-500 milljarða - finnst mér ESB aðildin og dýru verði keypt. Ef það er framkvæmanlegt að segja NEI - án þess að við förum 40-50 ár aftur í tímann - þá er það skárri leið en að kaupa ESB aðild á 400-500 milljarða króna. Ef við verðum að borga þetta, vil ég alla vega fá ESB aðild í staðinn, því þeir hjálpa okkur þá kannski aðeins ef við lendum í vandræðum með þetta.

Þarna finnst ýmsum Sjálfstæðismönnum vera rétt lýst. Þeir eru til í að selja skrattanum ömmu sína ef nógu miklir peningar fást fyrir hana. Mér er nokk sama um Icesave-málið en alls ekki um ESB. Þarna tengir Guðbjörn þessi tvö mál saman á þann hátt sem útrásarkálfunum mundi vel líka.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Icesave málið er 100x stærra og mikilvægara en venjuleg stóla- og flokkapólitík. Ákvörðunin mun hafa mikil áhrif í 20 ár hið minnsta.

Hans Haraldsson 25.6.2009 kl. 20:47

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Ég er sammála því að Icesave málið er miklu stærra en svo að ein vesæl ríkisstjórn skipti þar nokkru máli. Endanlega stærð málsins er þó ekki hægt að sjá, bara spá um og menn spá og spekúlera í allar áttir. Sama er að segja um ESB.

Sæmundur Bjarnason, 25.6.2009 kl. 21:35

3 identicon

"...Ég held að Steingrímur og jafnvel Jóhanna líka verði því fegnust ef Icesave-vitleysan verður einfaldlega felld..."

Þú segir nokkuð!  Mér hefur ekki dottið þetta í hug fyrr.

Það skyldi þó ekki vera?...

Malína 25.6.2009 kl. 23:52

4 Smámynd: Eygló

Já, það eru ýmsar skoðanir sem maður getur ekki látið í ljós, vegna stöðu sinnar. Maður HEFUR þær samt.

Sæmundur, það eru óvandaðir, ókurteisir og óvitrir bloggarar til meðal allra hinna sem fínir eru.  Sumt, að því er virðist annars ágætis fólk, verður eins og snúið roð í hund ef einhverjir eru á öndverðri skoðun.

Slíkt fólk ætti að merkja bloggin sín; að andmæli verði ekki liðin.

Svo ætti það endilega að sleppa athugasemdum, jafnvel lestri á bloggi sem kemur frá okkur hálfvitunum. Og þú sem ert aðalkallinn minn, þannig ("blogglega" séð)

Eygló, 26.6.2009 kl. 01:15

5 identicon

Margir bloggarar eru mjög háværir á móti Icesave-samningnum en ég er ekkert viss um að þeir endurspegli vilja þjóðarinnar í þessu máli.

Síðast þegar ég vissi höfðu rúmlega 30.000 manns skráð sig á Facebook gegn Icesave-samkomulaginu en þessi fjöldi er ekki mjög stór hluti af kosningabæru fólki í landinu - sem mig minnir að séu í kringum 220.000 manns (vonandi leiðréttir mig einhver ef þetta er ekki rétt).  Við höfum ekki hugmynd um hvaða skoðanir hinir (190.000) hafa á samkomulaginu.  Þeir eru ekkert endilega sammála háværustu bloggurunum. 

Kannski hafa verið gerðar einhverjar skoðanakannanir á þessu sem ég hef ekki séð.  Þá meina ég marktækar kannanir - ekki af þeirri gerðinni sem t.d. Útvarp Saga er með.

Malína 26.6.2009 kl. 01:51

6 Smámynd: Elle_

Sigurður Líndal hagfræðiprofessor kallar Icesafe samninginn nauðungarsamning.

Elle_, 27.6.2009 kl. 23:42

7 Smámynd: Elle_

Átti að vera Sigurður Líndal lagaprofessor.

Elle_, 28.6.2009 kl. 00:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband