669- Evrópumál og kosningar. Er hægt að skrifa um eitthvað annað?

Tillaga Björgvins um að láta Alþingi ráða varðandi Evrópusambandsumsókn er allrar athygli verð. Óþarfi að láta hræða sig frá þeirri hugmynd. Það getur samt vel verið að vinstri flokkarnir nái saman um þetta.

Enginn vafi er samt á því að niðurstöðuna úr viðræðunum verður að leggja fyrir þjóðina og næstum örugglega að kjósa aftur til Alþingis áður en hugsanlega getur orðið um inngöngu að ræða.

Það er ekki trúlegt að vinstri flokkarnir láti núverandi tækifæri til ríkisstjórnarmyndunar sér úr greipum ganga. Að mynda ríkisstjórn án þátttöku bæði Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hefur ekki áður boðist.

Undarlegt er að sjá bollaleggingar ýmissa um sigurvegara kosninganna. Sá einn sigrar sem flesta flesta þingmenn hlýtur. Aðrir geta byrjað vel, bætt mestu við sig frá síðustu kosningum og þess háttar en sigurvegarinn er bara einn.

Lýðræðishreyfingin galt áreiðanlega fyrir það að vera of tengd einum manni. Ástþór var bæði andlit hreyfingarinnar í augum fólks og sá sem öllu máli skipti. Aðrir féllu algjörlega í skuggann.

Að mörgu leyti er eftirsjá að Frjálslynda flokknum. Hjaðningavígin urðu þeim einkum að falli og svo virtist Guðjón Arnar varla nenna þessu.

Borgarahreyfingin gætti þess að vera nægilega hefðbundin til að fólk sæi sér fært að kjósa hana. Að mörgu leyti er hún samt ekki eins og venjulegir einsmálsflokkar og klofningsframboð og vel er hægt að líkja henni frekar við Kvennalistann sáluga. Hún er líka greinilegt afsprengi búsáhaldabyltingarinnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eygló

Af hverju er ESB málið svona mikið viðkvæmnismál?  Í öllum flokkum er fólk sem ýmist styður eða hafnar.

Hvað er að því að fara í gang með þetta? (verst hvað þetta verður kostnaðarsamt)

Er ekki öruggt að málið fari í þjóðaratkvæðagreiðslu?

En það er nú svo margt sem ég skil ekki.

Eygló, 28.4.2009 kl. 01:02

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Það hefur lengi verið deilt um þetta mál.

Það er ákvörðum flokkanna að gera þetta viðkvæmt svo fólk sé ekki að velta alvarlegri málum fyrir sér.

Þjóðaratkvæðagreiðsla er örugg. Þó er hægt að komast framhjá henni tæknilega séð.

Sæmundur Bjarnason, 28.4.2009 kl. 09:26

3 Smámynd: Eygló

Rosalega er margt orðið eitthvað "tæknilegt" núna. Jæja, enda tækniöld. Hvernig er hægt að komast framhjá henni "tæknilega"?  Fyrirtæki verða tæknilega fallitt líka. Nú er ég tæknilega orðlaus?

Eygló, 28.4.2009 kl. 14:43

4 Smámynd: Hólmfríður Pétursdóttir

Allt í lagi að ræða málið, ef það er verið að ræða málið, en ekki snúa út úr máli þess sem er á annarri skoðun eða vera með persónuárárásir.

Hólmfríður Pétursdóttir, 28.4.2009 kl. 15:24

5 Smámynd: Eygló

"Allt í lagi að ræða málið, ef það er verið að ræða málið"  Það er nebbbla heila málið!

Eygló, 28.4.2009 kl. 15:41

6 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Maíja: Veit það eiginlega ekki. Held þó að þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild hafi ekki ætið verið. Ekki í upphafi a.m.k.
Veit bara að íslensk stjórnvöld mundu aldrei komast upp með annað en að hafa þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Gott ef bandalagið krefst þess ekki líka núorðið.

Hólmfríður: Sammála þér um það að margir eru alltof stórorðið um þetta mál.

Sæmundur Bjarnason, 28.4.2009 kl. 21:40

7 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Það er ekki öruggt að þjóðaratkvæðagreiðsla verði Sæmundur en einna mikilvægast er nú eftir kosningarnar að sátt náist um að svo verði.

Hilmar Gunnlaugsson, 29.4.2009 kl. 13:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband