399. - Af hverju er fólk eiginlega að blogga?

Sumir blogga um andstreymi lífsins í nöldurtón. Aðrir um allan fjandann. Einhverjir eru með einskonar dagbók á sínu bloggi. Nokkrir á valdi heimspekinnar. Fáeinir eins og ég. Samt ekki alveg eins. Sem betur fer. Ágætt að vera einstakur í einhverju. 

Gríðarlega margir blogga um fréttir og fréttatengda atburði. Slíkt er ágætt. Það er gott að fá mismunandi sjónarhorn á ýmsa atburði. Mér finnst fréttabloggin samt vera of mörg en þau gera mér ekkert. Einn fréttabloggari hefur á undanförnum dögum komist nokkuð hátt á vinsældalistanum. Ég taldi 15 fréttablogg hjá honum sama daginn. Það finnst mér fullmikið en auðvitað geta menn notað tíma sinn eins og þeim sýnist.

Stjórnmálablogg eru oftast heldur leiðinleg. Sama er að segja um flest náttúruvænu bloggin. Þau eru ekkert skemmtileg aflestrar en þessi mál eru mikilvæg og þungi þeirra í allri umræðu á bara eftir að aukast.

Sagnfræðiblogg eru skemmtileg. Verst er ef maður kannast við þá sögu sem rakin er og hefði helst viljað hafa umfjöllunina allt öðruvísi. Þau mega heldur ekki vera of löng.

Líklega er bloggið að gera okkur ofurnæm á tímann. Ef ég vil lesa um eitthvað markvert og hef tíma til að lesa það sem ýtarlegt er þá verður bókin oftast fyrir valinu. Kröfurnar sem ég geri til sagnfræðibloggs eru þær að hnitmiðað og stuttaralega sé frá sagt. Vel má segja frá frekari heimildum og þá hefur maður val um að halda áfram ef tími er til. Í blogglestur ræðst maður oft þó tími sé naumur.

Mannlífið er svo fjölbreytt að ekki er tími til að velta sér uppúr öllu sem á fjörurnar rekur. Velja verður og hafna. Aðallega hafna.

Vandi bloggarans er sá að mögulegir lesendur hafa oftast allt aðrar hugmyndir en hann um hvað er mikilvægt. Erfitt er að skrifa svo vel að lesendur haldi áfram þó áhuginn hverfi. Maður veit samt aldrei og þessvegna er sjálfsagt að halda áfram.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég blogga vegna þess að mér finnst það skemmtilegt, svo einfalt er það nú.

DoctorE 25.7.2008 kl. 12:20

2 Smámynd: Kristinn Halldór Einarsson

Ég blogga til að koma á framræri upplýsingum og fréttum sem ég tel eiga erindi við samfélagið sem ég er hluti af.

Kristinn Halldór Einarsson, 25.7.2008 kl. 17:43

3 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

ég blogga svo þjóðin megi njóta þeirrar djúpu visku er af mér drýpur

Brjánn Guðjónsson, 25.7.2008 kl. 17:58

4 Smámynd: Birgir Þór Bragason

Sæll vertu Sæmundur, þú kemur sífelt á óvart. Það er gaman að lesa það sem þú skrifar. VInsamlega haltu áfram eins lengi og þú getur. Bestu kveðjur til þín.

Birgir Þór Bragason, 25.7.2008 kl. 19:29

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Veðurblogg er eina bloggið sem eitthvert vit er í!

Sigurður Þór Guðjónsson, 26.7.2008 kl. 00:16

6 identicon

Ég blogga ekki vegna þess að mér finnst skemmtilegra að lesa annarra manna blogg en mitt eigið!

Helga 26.7.2008 kl. 02:29

7 Smámynd: Yngvi Högnason

Það er nú ekki víst af hverju hver og einn bloggar en líklega er það vegna þess að hverjum finnst hann hafa eitthvað fram að færa þó að ekki sé annað en ljósmyndir, sem að koma oft skemmtilega á óvart, takk fyrir.
Veit einhver hvar maður finnur gott veðurblogg?

Yngvi Högnason, 26.7.2008 kl. 19:14

8 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Ég held að bestu veðurbloggararnir hér á Moggablogginu séu Sigurður Þór Guðjónsson og Einar Sveinbjörnsson. Annars er ég ekki sérstakur áhugamaður um veður. Ef þú hefur einhverjar séróskir í sambandi við veður er ég viss um að þeir geta hjálpað þér.

Sæmundur Bjarnason, 26.7.2008 kl. 22:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband