347. - Listablogg, séra Baldur og Lára Hanna

Sá frétt um að tveir norskir bloggarar hafi sótt um listamannalaun. Hraustlega gert hjá þeim. Er ekki bara eðlilegast að þeir sem búa hlutina til segi hvort þeir eru list eða ekki? Ef ég segi að þetta blogg sé list, þá er það bara list. Hversu merkileg hún er, verða aðrir að dæma um. Ekki held ég samt að ég muni sækja um listamannalaun fyrir þetta.

Það er áhugavert að fylgjast með skrifum þeirra Baldurs Kristjánssonar í Þorlákshöfn og Láru Hönnu um Bitruvirkjun. Baldur vill náttúrulega fá iðnað í sveitarfélagið og nú lítur meira að segja út fyrir að hann fái ekki einu sinni vatnið hans Jóns Ólafssonar. Þessvegna er hann svolítið sár yfir að Bitruvirkjun skyldi vera slegin af. Lára Hanna er hins vegar sigri hrósandi og ég lái henni það ekki.

Baldur er talsvert beittur þegar kemur að flóttamannamálum, rasisma og þess háttar. Nú er hann farinn að skattyrðast við Moggann og tala um Jyllandspost-teikningarnar meðal annars.

Ég held að við þurfum að fara dálítið varlega þegar heilu þjóðirnar eru dæmdar eftir sögusögnum og blaðafréttum af einstökum atvikum. Ekki dreg ég samt í efa að viðbrögð margra við nefndum teikningum voru alltof harkaleg. Kannski eru voðaverkin sem sögð eru tengjast þessum málum einangruð dæmi um vandræðamenn sem æstir hafa verið til óhæfuverka. Engar æsingar urðu hér á landi þegar æran var dæmd af Úlfari Þormóðssyni um árið eða þegar Spaugstofumenn voru teknir á teppið. Var ekki málfrelsi þeirra mikilvægt?

Í mínum huga er spurningin í þessu máli sú hvort skuli setja ofar málfrelsi eða mannréttindi. Þar stendur hnífurinn í kúnni, ef svo má segja. Má ég segja allt, bara ef það er satt, eða á ég að taka tillit til annarra?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Innlitskvitt

Gunnar Helgi Eysteinsson, 27.5.2008 kl. 05:35

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Egyptar þekktu fæstir til Íslands svo iðulega þurftum við að segja hvar á kortinu landið lægi.  Okkur varð einu sinni á að segja að Ísland væri á milli Grænlands og Danmerkur.  Egyptinn varð undarlegur á svipinn og sagði að danir féllu þeim ekki í geð vegna teikninganna frægu.  Eftir það sögðum við alltaf að Ísland lægi á milli Noregs og Grænlands. 

Anna Einarsdóttir, 27.5.2008 kl. 17:57

3 Smámynd: Baldur Kristjánsson

Ég var nú bara í vinsamlegu rökræðu við danskan heimspeking sem Mogginn tók viðtal við.  það var gott framtal hjá Mogga.   Ég var nú ekkert svo ósammála Láru hvað varðar Bitruvirkjun- ekkert sjálfsagt mál að virkja þar- en auðvitað sé ég eftir atvinnustarfsseminni. Þakka annars pistilinn. kv. B

Baldur Kristjánsson, 27.5.2008 kl. 21:21

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mér finnst alltaf einkennilegt þegar útlendingar vita ekki af Íslandi á landakorti, þessari stóru eyju úti í miðju Atlantshafi. Mér finnst alveg sjálfsagt að hver maður þekki löndin á landakorti heimsins sem hljóta alls staðar að vera til. Ég held að nafn einskis lands í heiminum sé mér óþekkt.

Sigurður Þór Guðjónsson, 27.5.2008 kl. 21:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband