258. - Fjallgöngur og stéttaskiptingin á Moggablogginu enn og aftur

Ég stundaði fjallgöngur af svo miklum ákafa í eina tíð að ég var hálf eyðilagður maður ef nýtt fjall bættist ekki við í mitt fjallasafn í hverjum sumarmánuði.

Sem betur fer stóð þetta ekki nema í fáein ár og ég byrjaði seint á þessu.

Einu fjöllin hér í nágrenninu sem ég man ekki eftir að hafa klifið eru Skarðsheiðin og Lyklafellið. Ég held að Skarðsheiðin sé mjög skemmtilegt fjall, en Lyklafellið er bara þarna og varla nema svona tíu mínútna gangur uppá það býst ég við, þegar maður er kominn að því. Í seinni tíð hefur þessi fjallasótt runnið af mér og auðvitað er ástæðan sú að ég á ekki eins gott með að steðja upp brattar hlíðar.

Ég gekk líka nokkrum sinnum milli Hveragerðis og Reykjavíkur og oft hef ég ferðast bæði einn og með öðrum fram og aftur um Helgilssvæðið allt og þekki þar vel til.

Um daginn var ég að blogga um stéttaskiptingu hér á Moggablogginu. Þá taldi ég það vísi að stéttaskiptingu að menn gætu séð hverjir eru tilbúnir að borga fyrir þau forréttindi að með þeirra bloggum birtast ekki auglýsingar til hægri við bloggið.

Það er reyndar önnur stéttaskipting í gangi hérna en hún er sú að nöfn 50 - 60 bloggara eru í einhvers konar úrvalsflokki sem mér er alveg hulin ráðgáta hvernig valið er í. Átta af þessum bloggum birtast efst og stór þegar farið er beint á Moggabloggið. Á eftir þessum átta koma síðan rúmlega 20 nýjustu bloggin.

Þessi úrvalsflokkur fær þannig talsvert meiri kynningu en þeir lægra settu og einstakir bloggarar í þessum flokki virðast einnig birtast mismunandi oft meðal þessara átta sem efstir eru. Ekki veit ég þó eftir hverju það fer.

Ég er ekki að segja að mig langi í þennan flokk en það væri gaman að vita hvernig valið er í hann. Kannski vita einhverjir sem í honum eru eitthvað um það. Meðal þessara 50 til 60 bloggara eru þónokkrir af bloggvinum mínum og þar á meðal nokkrir sem ég hef ástæðu til að ætla að lesi bloggið mitt nokkuð reglulega.

Svo ég dragi þetta saman þá eru a.m.k. þrír flokkar bloggara á Moggablogginu.

   1. Áttuklúbburinn (50 - 60 manns)

   2. Greiðandi bloggarar. Eflaust nokkrir tugir, en erfitt að segja til um það nákvæmlega.    Bloggstjórnendur gætu það þó að sjálfsögðu.

   3. Venjulegir almennir bloggarar sem sætta sig við auglýsingar.

Þeir sem eru í fyrsta flokki eru síðan alltaf líka annaðhvort í öðrum eða þriðja flokki.

Án þess að ég viti það gætu svo verið fleiri flokkar. Til dæmis gætu sumir bloggarar fengið greitt fyrir sín blogg, þó mér þyki það ótrúlegt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála - þetta er gjörsamlega óskiljanlegt ! ! ??  Kær kv. E.

Edda 23.2.2008 kl. 04:30

2 identicon

Varðandi þetta með fjallgöngur, þá var ég að enda við að lesa bók (sem þú fékkst á bókasafninu!)  Bókin heitir "Bíll og bakpoki" og er eftir Pál Ásgeir Ásgeirsson.

Hann lýsir skemmtilega gönguleiðum sem eru oft þannig að hann ekur að fjalli með sinn bakpoka og tjald og gengur svo hringinn í kringum þetta fjall. Það er snjallt að ganga hringinn í kringum fjöllin ef manni óar við að klífa þau!!

Þessi fjöll eru oftast jöklar, sem hann "hringsólar"og göngulýsingarnar hjá honum eru mjög skemmtilegar.

aslaugben 23.2.2008 kl. 09:30

3 Smámynd: Erna Bjarnadóttir

Velt mælt.

Erna Bjarnadóttir, 23.2.2008 kl. 21:01

4 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég gerði örlitla úttekt með Áttuklúbbinn og miðaði við hvar viðkomandi væru á topp-400 listanum. Útkoman var svona:

Sæti: 3 - 6 - 14 - 15 - 19 - 23x2 - 24 - 41 - 45 - 52 - 57 - 84 - 155 - 223 - 256x2 - 307.  5 manns voru ekki inni á topp-400 en 2 komu tvisvar upp.

Í þau skipti sem ég hef skoðað þetta er alltaf sama fólkið þarna, aftur og aftur, jafnvel þótt viðkomandi setji ekki inn færslu nema á 2-3 mánaða fresti og fréttabloggi aldrei. Ekki nokkur leið að sjá hvernig valið er inn á þennan lista.

Lára Hanna Einarsdóttir, 24.2.2008 kl. 11:54

5 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Já, mér finnst þetta ansi skrýtið og hálfhallærislegt þegar sama bloggið kemur upp í tuttugasta og sjöunda sinn. Mér finnst stýringin á því hvenær viðkomandi blogg koma upp jafnvel skrýtnari en hvernig valið er á listann. Það hlýtur að vera forrit sem velur samkvæmt einhverjum dularfullum breytum hvaða blogg koma upp, en upphaflega valið getur vel verið algjört geðþóttaval.

Sæmundur Bjarnason, 24.2.2008 kl. 12:25

6 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég hef aldrei séð neinn á áttmenningalistanum sem ég hef ekki séð þar áður sem segir mér að þar sé engin endurnýjun.

Lára Hanna Einarsdóttir, 24.2.2008 kl. 13:01

7 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Þeir sem eru á listanum ættu að geta upplýst hvernig þeir komust á hann. Ég held að um einhverjar breytingar hafi verið að ræða frá því í byjun, en viðbætur eða endurnýjun er afar hæg nú orðið, hefur jafnvel alveg stöðvast. Líklega þýðir ekki að spyrja um þetta á kerfisblogginu en þó mætti reyna það.

Sæmundur Bjarnason, 24.2.2008 kl. 13:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband