205. - Dóphausar í Borgarnesi og morðingjar í Keflavík

Mikið er rifist þessa dagana um það hvort rétt sé að leyfa auglýsingar inni í áramótaskaupinu eða ekki. Líklega hefur engin auglýsing á Íslandi hlotið aðra eins auglýsingu fyrirfram!!!

Ég man að á sínum tíma var líka rifist um það hvort kalla ætti skaupið skaup. Þá var þetta fremur sjaldgæft orð og fáir sem þekktu merkingu þess. Það varð þó ofan á að leyfa aðstandendum skaupsins þessa sérvisku.

Spurningin um hvort leyfa skuli auglýsingu inni í skaupinu eða ekki er eiginlega á síðasta snúningi. Áhorfendum að skaupinu fer óðum fækkandi og ekki líður á löngu þar til fáir nenna að horfa á þetta nema í endursýningum eða á Netinu. Þá verður væntanlega auðvelt fyrir þá sem ekki vilja sjá auglýsingarfjandann, að komast hjá því.

Ef auglýsingar pirra hafa þær öfug áhrif og það er engum til góðs að þvinga fólk til að horfa á þær. Ríkisútvarpið er líka annað hvort í samkeppni eða ekki. Vitanlega ætti það ekki að vera á auglýsingamarkaðnum. Það er alltof  fyrirferðarmikið þar.

Fór í dag útá Kleppsveg að ná í jólagjafir frá Bjarna, en hann hafði sent þær með manni sem var á leið til Íslands og kom hingað í morgun. Ég var svoltila stund að finna rétta húsnúmerið, en allt fór þetta vel að lokum.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur komist að þeirri niðurstöðu að Hæstiréttur Íslands hafi kveðið upp rangan dóm í ákveðnu máli. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem slíkt skeður. Flestallt sem áunnist hefur í mannréttindamálum hér á landi undanfarna áratugi hefur komið að utan. Það er grunnt  á fasistiskum tilhneygingum hjá íslenskum stjórnvöldum.

Samkvæmt fréttum á Stöð 2 eru flestir dóphausarnir í Borgarnesi, kynferðisafbrotamennirnir á Akranesi og morðingjarnir í Keflavík. Þetta er samkvæmt einhverri skýrslunefnunni sem fréttafólki þykir svo gaman að skoða.

Lóa Pind, sem flutti þessa frétt, tók reyndar fram að það væri ekkert að marka hana. Eini tilgangur fréttastofunnar með þessu rugli er að fylla uppí eitthvert fyrirfram gefið tímamunstur með efni sem mögulegt er að einhverjir taki alvarlega. Ég fer að halda að fréttastofa Stöðvar 2 sé á síðustu metrunum.

Hér koma tvær myndir sem Siggi í Fagrahvammi lét Bjössa fá til skönnunar.

Þessi mynd er frá Hveragerði. Núpafjall er í baksýn. Myndin er sögð tekin nokkurn vegin frá þeim stað þar sem nú er Grunnskólinn í Hveragerði. Ekki man ég eftir Hveragerði svona útlítandi. Ég man þó eftir að hafa farið með kaffiflösku í sokk til pabba, sem þá var ásamt öðrum að byggja það sem þá var kallað nýji barnaskólinn til aðgreiningar frá gamla barnaskólanum sem var svolítið vestar og nær hótelinu.

 

 

Þetta er gömul mynd af Fagrahvammi. Ég man ekki eftir þeim stað svona, en það fer ekkert á milli mála að þetta er Fagrihvammur. Reykjafjallið og Ingólfsfjallið í baksýn taka af allan vafa um það.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Það er nú alveg með eindæmum hvaða fréttir yfirvaldið hérna lætur frá sér fara.  Ef einhver er tekinn með gram af dópi hérna, er það komið í fréttirnar.  Ef sama fréttamennska væri viðhöfð í Reykjavík, væru blöðin full af dópfréttum á hverjum degi.  Um daginn var frétt um 4 drengi hérna sem voru ákærðir fyrir líkamsárás.... og þeir voru allir nafngreindir án þess að búið væri að dæma í málinu.  Menn í Reykjavík eru ekki einu sinni nafngreindir þótt þeir séu grunaðir um morð.... fyrr en dómur er fallinn.   Skömm að því hvað yfirvaldið ber litla virðingu fyrir unglingum í bænum.  Unglingarnir hér eru ekki verri en annars staðar.... það fullyrði ég.

Anna Einarsdóttir, 22.12.2007 kl. 11:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband