2377 - Allir fái kúlulán

Nú ætla ég að flýta mér og biðja bankastjórann minn (þennan í vasanum) að útvega mér kúlulán til að virðast vera fínni en Siggi með sixpensarann. Kúlulán eru það eina sem blívur. Sumir halda að það merki að hrunið nálgist, en það er bara vitleysa. Þegar engar árshátíðir verða lengur haldnar á Íslandi og gengisfellingin afstaðin, þá er líklegt að hrunið sé að nálgast. Fyrr kemur það ekki.

Þegar ég skrifa ekkert eru heimsóknir að sjálfsögðu í lágmarki á bloggsíðunni minni. Oftast svona 15 til 17, en þegar ég skrifa, hve ómerkilegt sem það kann að vera, fjölgar heimsóknunum mikið og geta sem hægast orðið svona tvö til þrjú hundruð á dag. Ekki veit ég af hverju þetta er. Sjálfum finnst mér það auðvitað afar merkilegt sem ég skrifa og skil ekkert í því að heimsóknirnar skuli ekki skipta þúsundum. Mér finnst þær gera það við ómerkilegri skrifum. Vitanlega er maður samt lélegur dómari í eigin sök. Það vita allir. Hvort þeir haga sér svo í samræmi við það er önnur saga.

Einu sinni átti ég það til að hneykslast á Guðbergi Bergssyni, en ekki lengur. Hann gerir í því að reyna að ganga framaf fólki í blaðagreinum sem eru alveg það sama og blogg. Veit lítið um sögurnar hans og er löngu hættur að lesa þær. Las í fyrndinni bókina „Tómas Jónsson, metsölubók“ og fannst hún fjandi lipurlega skrifuð. Einu bækurnar sem ég man eftir að hafa klárað eftir Hallgrím Helgason eru „Hella“ sem ég held endilega að sé hans fyrsta bók. Sú bók var lágstemmd og góð. Svo las ég um menntaskólakennara í Skagafirði sem fór ríðandi til Reykjavíkur og einhverja Guðspeki og geimferðavitleysu eftir hann minnir mig að ég hafi líka lesið. Tek á mig stóran krók ef ég hef á tilfinningunni að „Höfundur Íslands“ sé í nágrenninu.

Það er erfitt að vera alltaf á tánum til að forðast næsta hrun, en svona er þetta. Ekki held ég að það séu margir sem skilja ruglið í Bjarna og Sigmundi um snjóhengjuna og heimsmetið. Best gæti ég trúað að öll þessi vitleysa springi í andlitið á þeim og Má seðlabankastjóra, sem þeir eru víst hætti við að reka. Ekki skil ég allan þennan milljarðasöng hjá þeim og gott ef hann er ekki til þess ætlaður að slá ryki í augun á sem flestum. A.m.k. eru fjölmiðlamenn flestir farnir að trúa þeim.

Með ómstríðri þögn hann alla ærir. Sennilega gæti ég sem hægast sett saman eitthvað sem flestir gætu haldið að væru nútímaleg ljóð, en það ætla ég ekki að gera. Þegar ég var tvítugur setti ég saman allskyns vitleysu og kallaði ljóð. Sem betur fer sáu þetta engir aðrir. Einhverjir hefðu getað haldið að ég væri skáld. Nóg var skeggið. Svo fór að skákin heillaði meira en boðnarmjöðurinn og ekki sé ég eftir því. Að gera sér grein fyrir hve fallegar fléttur í skákinni geta verið er miklu meira virði en lágkúrulegt ljóðahrafl. Verst að ég get ekkert lengur í skákinni. Samt puðrast ég við að tefla bréfskákir eins og hverjar aðrar hraðskákir. Nú um stundir þykir mér 15 mínútna skákir vera hraðskáir. Áður fyrr voru 5 mínútur algengastar.

IMG 1729Fornminjar. Kannski klósett.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband