2242 - Um reiða fólkið og sitthvað fleira

Svei mér þá. Þegar byssunum sleppir þá verður Einar Benediktsson skáld aðalumræðuefnið. Mér finnst nú margt merkilegra. Styttan af honum er kannski ekkert sérlega góð og á fremar óheppilegum stað, einnig hefur hann eflaust verið harðdrægur sýslumaður en úrvalsskáld var hann og þó þeir séu greinilega margir sem eru á móti honum og yngri kynslóðin kunni alls ekki að meta skáldskap hans, þá mun hans tími koma. Mér finnst að menn megi ekki láta önnur svið trufla sig of mikið, þegar skáldskapur hans er metinn. T.d. held ég að Steinn Steinarr hafi verið hundleiðinlegur við marga, þó úrvalsskáld hann væri. Tek hann bara sem dæmi því margir meta skáldskap hans að verðleikum, þó þeir kunni ekki að meta skáldskap Einars.

Nú í morguns-árið ætla ég ekki í gönguferð þó veðrið sé nokkuð heppilegt til þess, því á eftir ætla ég að keyra konuna mína niður í Hörpu, en í dag ætlar hún ásamt nokkrum öðrum að standa í blómabúð þar og mála mynd og allir mega koma og sjá. Kannski verða það margir og kannski ekki. Þetta er í tilefni myndlistadagsins og það er Litka, sem áður hét félag frístundamálara, sem stendur fyrir þessu.

Nú eru Svíar loksins búnir að sjá ljósið. Þeir eru búnir að viðurkenna Palestínu og fá bágt fyrir hjá sumum. Íslendingum finnst eðlilega merkilegast að hafa orðið fyrri til. Mér finnst það ekki. Svíþjóð er mun nær því en Ísland að vera alvöruríki. Bandaríkjamenn, sem oftast ráða því sem þeir vilja, eru líklega ornðnir hundleiðir á Ísraelsstjórn. Skemmst er að minnast landsleiksins í handbolta sem Íslendingar léku við Ísrael. Hvernig skyldi standa á því að þeir taki þátt í Evrópumóti? Jú, Evrópuþjóðirnar vorkenna þeim (og hafa sumar slæma samvisku) því arabarnir vilja skiljanlega ekkert með þá hafa.

Margrét Tryggvadóttir skrifar „bréf til reiða fólksins“ í Kjarnann (kjarninn.is) og mælist vel þar á margan hátt. Samt gat hún ekki hugsað sér að styðja Píratana í síðustu kosningum, en þeir eru ásamt Birgittu Bergþórudóttur (að mínu mati) helsta von Íslands stjórnmálalega séð. Reiða fólkið hægra megin við miðju getur kannski ekki séð það og þessvegna er hugsanlegt að vonin liggi annars staðar.

Nú er bloggið hjá mér að verða fullstjórnmálalegt og þessvegna er best að fara að ljúka þessu. Ein mynd verður samt látin fljóta með að venju. Gott ef bloggin er ekki óðum að styttast hjá mér.

IMG 1859Gufa og galdrahús.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll, ágæti Sæmundur!

Nei, Einar var ekki harðdrægur sýslumaður
þvert á móti reyndist embættið honum
erfiðir fjötrar og þungbærir.
Um þetta er vitnað í Dægradvöl Benedikts Gröndal
og reyndar allar heimildir samhljóða um þetta.

Ásmundur Sveinsson sá hlutina í sínu sérstaka ljósi!

Húsari. 1.11.2014 kl. 12:57

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk húsari. Ég er nú enginn sérstakur aðdáandi Einars Ben. og vel getur verið að þetta sé rétt hjá þér. Sigurður Þór er ekki par hrifinn af honum, en sumir eru það. Hann var a.m.k. fyrirferðarmikill. Eins og með t.d. Robert Fischer finnst mér þurfa að gera greinarmun á snilligáfunni og göllunum.

Sæmundur Bjarnason, 1.11.2014 kl. 23:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband