2211 - Skelfing er mér SDG hugleikinn

Útivera er engu lík. Á tíunda áratug síðustu aldar fór ég gangandi í þónokkrar ferðir um hálendi landsins. T.d. Laugaveg (milli Landmannalauga og Þórsmerkur), Kjöl og Hornstrandir Einnig hef ég klifið flest fjöll hér í nágrenni Reykjavíkur. Túristar voru hvergi til trafala. Auðvelt var að fá inni í skálum á Laugavegi og Kili á þessum tíma og svo var auðvitað hægt að tjalda hvar sem er. Atvik úr þessum ferðum eru mörg eftirminnileg. Man að á meðan við vorum í Hornstrandaferðinni lauk heimsmeistarakeppni í fótbolta. Viku eftir að við komum úr ferðinni datt mér í hug að spyrja hvaða landslið hefði unnið heimsmeistaratitilinn. Samt var ég á þessum tíma ekkert áhugalausari um boltaíþróttir en gengur og gerist.

Nú er Simmi að tala við stofnfrumuna sína:

„Finnst þér að ég ætti að leyfa Hönnu Birnu að hætta?“

„Já, þetta er nú búið að vera bölvað ströggl hjá henni. Ætli hún yrði ekki bara fegin að losna!“

„Sko, við Framarar höfum alltaf viljað skipta og gera breytingar á ráðherraliðinu. Sigrún getur hæglega bætt þessu á sig og þá erum við með fleiri ráðherra en þeir. Það er bara sanngjarnt. Þannig átti það að sjálfsögðu að vera allan tímann. Og þá slepp ég líka við allar vitleysurnar frá Vigdísi.“

„En heldurðu að Bjarni samþykki þetta?“

„Ég segi honum að þetta sé eina leiðin, og þá samþykkir hann strax.

„Ja, kannski hann vilji að nýr ráðherra verði sjálfstæðismaður.“

„Það er ómögulegt. Ég var búinn að segja að ráðherrar okkar yrðu jafnmargir áður en yfir lyki.

„Já, en ekki fleiri. Er það ekki svolítið bratt. En við getum svosem reynt.“

„Já, þetta er samt bölvað klúður. Einhverju verður að breyta.“

Einelti getur verið með ýmsu móti. Skólaeinelti og allskyns ofbeldi sem þar þrífst er þekkt fyrirbrigði. Margir hafa orðið fyrir því og náð samt tökum á lífinu. Nú er það kallað einelti sem áður var kallað ´að skilja útundan´ Slíkt einelti getur verið alveg eins slæmt og hitt. Nafngiftir skipta litlu. Segja í mesta lagi til um þjóðfélagsástand. Hægt er að leggja fullorðið fólk í einelti og oft er það gert á vinnustöðum. Einnig má í því sambandi nefna að Tíma-Tóti, Þórarinn Þórarinsson, sem var ritstjóri Tímans í gamla daga og á margan hátt framarlega í stjórnmálum þess tíma, var alltaf látinn vera með kopp hjá sér eða á höfðinu á öllum  skopmyndateikningum. Vel má kalla það einskonar einelti. Eflaust hefur það stuðst við einhvern brandara um hann, en ekki hef ég hugmynd um af hverju koppurinn var ævinlega þarna. Pólitíkusar dagsins kvarta stundum undan einelti en mér finnst það ekki vera einelti þó gert sé grín að þeim. Stjórnmálaumræðan hér á landi er samt oft óþarflega harkaleg.

Ef það verður úr eldgosi í Vatnajökli núna verður það algjört túristagos. Ekki nenni ég þangað og ekki verður okkur hætt þessvegna hér í Kópavogi. Ef þetta gos verður nægilega lítið og langvarandi gæti það vel haft jákvæð áhrif á ferðamannastrauminn hingað. Ef ekkert merkilegt gerist í gosmálum getur aftur á móti hæglega tekið fyrir hann hvenær sem er. Hve mörg hótel sem byggð verða.

IMG 1531Hér er búið að leggja útfararstofu Íslands niður.

IMG 1536Blóm.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Já, já Sæmundur, Þú ert ljóslega með Simma maníu.

En læknirinn minn ágætur og gamall segir að það sé ekkert hættulegt. 

Þannig að þú skalt bara halda áfram að hafa Simma maníu.    

Hrólfur Þ Hraundal, 18.8.2014 kl. 11:40

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Það er sennilega betri manía en mörg önnur. Takk Hrólfur.

Sæmundur Bjarnason, 18.8.2014 kl. 20:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband