2120 - Hanna Birna og gíraffinn

Ólafur Skorrdal skrifaði pistil á vefsvæði Jacks Hrafnkels Daníelssonar og kallaði hann 10 litlir öryrkjar eða eitthvað þessháttar. Hef aldrei farið áður á vefsvæði eða blogg Hrafnkels og tölvan hjá mér var ansi lengi að ná í allt sem við átti að éta. Var næstum búinn að gefast upp en langaði til að lesa þessa grein eftir Ólaf Skorrdal. Sennilega eru þeir báðir (eða voru) í píratapartýinu og Birgitta Bergþórudóttir sömuleiðis.

Las þessa grein frá upphafi til enda og fannst hún ansi orðljót á köflum en um sannleiksgildi hennar efast ég lítið. Á einum stað var greinilega ruglað saman pylsum og pilsum. Sá fyrir mér einhvern sem sigri hrósandi lyfti upp pulsu (með sinnepi og tómatsósu eða án) en það var ólíkt dónalegra sem þarna átti að vera. Var reyndar dregið til baka.

Þannig getur ein lítil stafsetningarvilla eyðilagt heila grein. (A.m.k. fyrir mér.) Sennilega hefur Ólafi bara verið svona mikið niðri fyrir að yfirlesturinn hefur klikkað. Mér finnst samt að ekki megi hengja sig of mikið í málfarsraus ef vel skilst hvað við er átt.

Aðallega er Ólafur ósáttur við hve litla athygli (fjölmiðla og annarra) mótmæli öryrkjanna fengu og hve fáir mættu. Þetta er stöðugt vandamál allra aðgerðarsinna og færir mikil völd til þeirra sem hugsanlega eru að mestu sammála þeim en kannski ekki baráttuaðferðunum.

Óneitanlega er það svo að með nútímamiðlun (fjöl- eða ekki.) upplifir fólk sig ekki nærri eins ofurselt yfirvöldum þessa lands og áður var. Kannski verður hlutverk alþingismann erfiðara fyrir vikið, en samt er með öllu óþarft að vorkenna þeim eða stjórnvöldum að þurfa að hafa svolítið fyrir lífinu.

Æ, já. Pólitíkin er leiðindatík og best að forðast hana. Málfarsrövl getur líka verið hundleiðinlegt. Ef mótmæli takast vel einu sinni má alls ekki reyna að endurtaka þau á sama hátt. Enginn nennir að taka þátt í slíku. Öskutunnusláttur á Austurvelli er kominn úr tísku. Sennilega er samt enn lengra síðan Cato-tískan sem ég fylgi varðandi Ásgautsstaðamálið komst úr tísku en ég finn bara ekkert nýtískulegra.

Greinilegt er að gíraffinn í Köben og Hanna Birna og lekinn eru mál málanna í dag. Þá á ég alltaf svolítið bágt með að láta ekki ljós mitt skína. Kannski eins konar smitun frá Agli Helga. Það er enginn vafi að afbrot hefur verið framið í lekamálinu. Hanna Birna ber ábyrgð á því. Mér finnst samt alls ekki augljóst að hún eigi að víkja úr ráðherraembættinu meðan lögreglan rannsakar málið. Forsætisráðherra  og fjármálaráðherra reyna greinilega að hafa áhrif á almenningsálitið með því að gefa í skyn að kæra í einkamáli sé nákvæmlega það sama og opinber ákæra. Svo er ekki og þeir vita það áreiðanlega mæta vel sjálfir. Þess vegna er það sem þeir halda fram vísvitandi blekking.

Þá er það gíraffamálið. Þar finnst mér fjölmiðlar hafa hlaupið illilega á sig. Þetta er í rauninni allsengin frétt, en þeir halda greinilega að þetta sé það sem fólk vill sjá, frekar en það sem myndatökumönnunum mundi sjálfum vera ofraun að horfa á. Þeim er ekki hleypt þangað og þar að auki eru markaðshagsmunir í hættu. Já, ég á við t.d. kjúklinga og svínaslátrun. 

Auk þess legg ég til að Ásgautsstaðamálið verði tekið úr höndunum á Sigurði lögfræðingi og reynt að fá einhvern í málið sem er ákveðnari en hann.

IMG 5895Nauthólsvík.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Lekamálið er greinilega "hannað" í ráðuneytinu og er nú orðið að boomerangi vegna klaufaskapar aðstoðarmannanna.  Gíraffamálið er bara dæmi um sjúkan hugsunarhátt Dana sem hingað til hefur tröllriðið sjónvarpi og bíómyndum gerðum af mönnum eins og Lars Trier og Klown genginu.  Ekki minn tebolli eins og málfarslöggurnar segja.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 12.2.2014 kl. 17:25

2 identicon

"Það er enginn vafi að afbrot hefur verið framið í lekamálinu. Hanna Birna ber ábyrgð á því." Sko, eftir að hafa skoðað þetta minnisblað gaumgæfilega tel ég engar líkur á að það sé ættað úr neinu ráðuneyti, ekki heldur Innanríkisráðuneytinu. Svo er ekki best að bíða eftir niðurstöðum lögreglurannsóknar áður en nokkru er slegið föstu um afbrot Hönnu Birnu?

Harpa Hreinsdóttir 12.2.2014 kl. 20:00

3 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Harpa, Davíð Oddsson sagði þetta er mér fortalið og í þessu efni trúi ég honum alveg. Það hefur ekkert komið fram um það að Moggamenn hafi efast um að þetta kæmi úr ráðuneytinu. Um ábyrgð Hönnu Birnu á því sem þar gerist þarf ekki að efast. Hvað hún eða aðrir gera í framhaldi af lögreglurannsókninni hef ég ekkert sagt um.

Sæmundur Bjarnason, 12.2.2014 kl. 22:28

4 identicon

Gíraffinn var hlutaður sundur fyrir framan fjölskyldufólk á heimsókn í þennan dýragarð. Algengasta ástæðan fyrir að nenna í þá drepleiðinlegu staði dýragarði, er að börn hafa gaman af þeim. Vildir þú að barnabörnin þín þyrftu að horfa á gíraffa sagaðan í sundur og blóðið drjúpandi. Hefði þér þótt það boðleg reynsla, sem barni? Gíraffamálið fékk ekki nóga athygli. Um var að ræða andlegt ofbeldi á börnum. Kjúklinga- og svínamálin þurfa meiri athygli og fólk ætti að skilja að þeir sem borða sjúk og fárveik dýr verða sjúkir og fárveikir sjálfir. Villidýr hafa vit á að láta slíkar skepnur eiga sig og maðurinn er ekki hrææta. Samfélag sem leyfir svona viðbjóð býður líka upp á lækkun almenns siðferðis og mannúðar með að normalisera grimmd.

Tryggvi 13.2.2014 kl. 07:26

5 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Sammála þér að miklu leyti, Tryggvi. Yfirvöld dýragarðsins gerðu sig sek um mikið hugsunarleysi líka, að því er virðist. Það er ómarkviss aðferð við fæðuöflun að þurfa endilega að láta jurtirnar fara í gegnum grasbíta fyrst til að geta borðað. Einu sinni var nú talað um að fiskar fyndu ekki til, af því þeir væru með kalt blóð. Skyldi ekki bráðum liturinn á blóðinu skipta máli líka og jafnvel jurtirnar fara að finna til? Við mennirnir þykjumst vera herrar jarðarinnar og berum ábyrgð á því sem við gerum. Umgöngumst dýrin (og jurtirnar) af virðingu.

Sæmundur Bjarnason, 13.2.2014 kl. 10:32

6 identicon

Sæll Sæmundur.   Hef gaman af því að lesa það sem þú skrifar og heimsæki síðu þína oft.   Ég vil benda þér á þetta viðtal við yfirmann dýragarðsins þar sem hann færir nokkuð góð rök fyrir þessari aðgerð. 

http://visir.is/oupplystum-aesifrettamanni-pakkad-saman-af-pollrolegum-dyrafraedingi/article/2014140219756

Brynjar 14.2.2014 kl. 14:23

7 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk Brynjar. Mér finnst nú þetta gíraffamál vera orðið alltof fyrirferðarmikið. Oftast hafa krakkar ekki nema gott af því að sjá hvernig lífið er. Og það á að vera foreldranna að ala þau upp að því leyti. Fjölmiðlar og dýragarðar eiga a.m.k. ekki að gera það.

Sæmundur Bjarnason, 14.2.2014 kl. 23:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband