1944 - Sturla

Nú er ég líklega orðinn „virkur í athugasemdum“ jafnvel mikilvirkur. Ég var nefnilega að kommenta á frétt um Sturlu Jónsson núna rétt áðan. Eins og ég er nú mikið á móti stjórnmálum. Það er bara ekki hægt að varast þau þó ég sé að reyna að forðast að skrifa um þau þessa dagana.

Hinir og þessir eru alltaf að segja að það eigi að fara eftir lögum, ef þeim finnst ástæða til að svindla eitthvað. Sturla Jónsson hefur þetta svolítið öðruvísi. Ef lögin standast ekki skilning hans þá eru þau ómark og að engu hafandi. Þetta er sú hugsun sem ég held að margir hafi um Sturlu. Sumir virðast forðast hann eins og þeir geta, en aðrir trúa hverju orði sem hann segir. Þarna er dálítið bil á milli.

Höfundur bókarinnar um Free Country, sem ég sagði svolítið frá í gær ef ég man rétt, skrifaði mér í gegnum fésbókina og ég er talsvert upp með mér af því. Jú, auðvitað skrifaði ég honum fyrst. Honum var nær að setja upplýsingar um fésbókarsíðuna í bókarræfilinn.

Nú forðast ég eins og ég get að setja eitthvað með pólitísku ívafi í bloggið mitt. Gat þó ekki stillt mig um að hnýta svolítið í Sturlu hér áðan. Skoðanakannanir hrynja yfir mann þessa dagana eins og hvert annað haglél. Túlkanirnar (eins mismunandi og þær eru) eru samt jafnvel verri. Eru engin málefni eftir? Bara spádómar. Á virkilega að kaffæra fólk í kosningabulli? Trúa þessu einhverjir?

Hér eru nokkur fótmæli úr rafritinu. Hægt er að nálgast það merka rit hér: http://snerpa.is/net/rafrit/raf.htm  Fótmæli eru til þess að hafa í bréfafótum. Segja má líka að það séu spakmæli út úr kú. Já, yfirleitt eru þau tóm vitleysa. Því vitlausari því betra.

Sælir er unglingarnir því þeir munu skuldirnar erfa.

Stöðugar breytingar eru komnar til að vera.

Skerðu pizzuna í 6 sneiðar, ég get ekki borðað 8.

Windows 3.0: kemur frá fólkinu sem færði þér EDLIN.

Windows 3.1: flottasti kapall sem ég hef séð.

Sega og Nintendo ætla að sameinast. Nýja fyrirtækið á að heita Windows NT.

SYSTEM ERROR: Ýttu á F13 til að halda áfram.

Það er lífshættulegt að verða gamall.

Mánudagar eru rót alls ills.

Ekkert er svo einfalt að ekki sé hægt að klúðra því.

Nú, þegar ég hef gefið upp alla von, líður mér miklu betur.

Þegar þú ert farinn að skilja hvernig tölvan þín vinnur, þá er hún orðin úrelt.

Frestaðu því aldrei til morguns sem þú getur alveg eins gert hinndaginn

Samkvæmt lögmáli Arkímedesar léttist hlutur sem settur er í vatn um þriðjung þeirrar vegalengdar sem er auð og hindrunarlaus framundan.

Bannið ruslpóst og bjargið trjánum.

Láttu mig vita ef þú hefur ekki fengið þetta bréf.

Framtíðin er eins og nútíðin, nema lengri.

Enginn sleppur lifandi frá lífinu.

Númerið sem þú hringir úr hefur verið aftengt.

Helstu kostirnir við þessi fótmæli sem ég er að birta núna og um daginn er að sumum finnst þau fyndin. Ekki get ég gert að því . Viðsnúningur algengra spakmæla getur líka verið fyndinn. Einu sinni safnaði ég slíku, en ég veit ekkert hvar það er. Það er einmitt aðalgallinn við söfnunarnáttúruna sem margir hafa að hún (eða afrakstur hennar) týnist. Þannig er það bara.

IMG 3004Leitað að framtíðarveginum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband