1744 - Ólafur sérstaki

Hef áhyggjur af Ólafi sérstaka. A.m.k. gengur allt voðalega hægt hjá honum. Kannski er hann svona hræddur við dómstólana. Hef á tilfinningunni að verið sé að leita að undankomuleiðum fyrir mestu þjófana. Ef Ólafur flýr til Ingva Hrafns eins og fleiri, þá skal ég trúa því að hann sé að tefja málin viljandi, annars ekki.

Geri alls ekki ráð fyrir að kjósa Sjálfstæðisflokkinn í næstu kosningum þó ég bloggi enn á Moggablogginu. Líklega ekki Samfylkinguna heldur. Þessir flokkar eru ákaflega líkir. Keppast báðir við að rugla kjósendur sína í ríminu og þykjast vera vinir litla mannsins. Sem þeir eru alls ekki. Vinstri grænir og framsókn eru svo bara smáflokkar sem tilheyra þó fjórflokknum og ættu skilyrðislaust að hverfa þess vegna. Hvað er þá eftir? Veit það ekki, en í uppstokkuninni sem vonandi verður í næstu þingkosningum gæti svarið fundist.

Hvert skyldu þeir fara sem útskrifast af fésbókinni? Formspring er bara fyrir krakka og unglinga held ég. Er viss um að sumum sem hættu við bloggið á sínum tíma og yfirgáfu það hafi fundist fésbókin taka við á einhvern hátt. Er líf eftir fésbókina? Veit það ekki. Er auðvitað að tala um tölvulíf, sem er eiginlega ekkert líf. Samt á að þröngva því sem mest uppá krakkagreyin því þau eru varnarlaus. Verður ekki sá tími sem sparast við tölvuvæðinguna aðallega frítími fyrir kennarana? Og ef peningar sparast í raun og veru, hvert fara þeir þá?

Já, það er áreiðanlega mest sjálfum mér að kenna. Mér finnst einna merkilegastur sá hluti PussyRiot-sögunnar sem snýr að Garry Kasparov. Skrifaði eitthvað um Spassky vesalinginn hér á síðuna um daginn af því að Mogginn birti þýðingu á frétt um hann. Skákfréttir er samt aðallega að finna á Chessbase http://chessbase.com/ og auðvitað er best að vísa þeim þangað sem eru líkir mér með það að leggja ævinlega eldgamalt skákmat á hlutina.

Jæja, þá er Harpa byrjuð að blogga aftur http://harpa.blogg.is/ og skrifar hvorki meira né minna en um rafbækur að þessu sinni. Er sammála henni um næstum allt. Geri ráð fyrir að hún sé að tala um Kindle fire tölvu eins og ég á líka. Helst vil ég tala um Kyndilinn minn en hún hefur nafnið með einföldu upsiloni og hefur áreiðanlega eitthvað fyrir sér í því.

Á einum stað talar hún um að hægt sé að hafa yfir hundrað bækur í einu í tölvunni og að hún (tölvan) sé um 300 grömm. Þarna hefði ég kannski notað aðrar tölur. Bækurnar gætu sennilega verið um tíuþúsund og þyngdin nálgast 500 grömm. Þetta er í sem stystu máli einkum það sem ég get að bloggi hennar fundið og ráðlegg öllum sem áhuga hafa á rafbókum (Óla Gneista jafnvel líka) að lesa bloggið hennar.
P.S. Sé núna á myndinni hjá Hörpu að líklega er þetta ekki Kindle fire tölva (sem ég vil nú helst kalla spjaldtölvu) sem hún á og þar með eru þessar tölur ómark hjá mér.

IMG 1373Sum fyrirtæki í Auðbrekkunni leggja áherslu á að hafa umhverfið sem óhrjálegast.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nei, ég á ekki Kindle Fire heldur Kindle Keyboard 3G. Er sammála Óla Gneista um að óþægilegt sé að lesa mikið á baklýstan skjá. Og auðvitað minnist ég á Óla Gneista þegar ég fer að fjalla um íslenskar rafbækur :)

Óli spes er bara gætinn eins og Skagamenn eru gjarna ...

Harpa Hreinsdóttir 22.8.2012 kl. 20:14

2 identicon

Hef annars ekki hugmynd um hve Kindillinn er þungur, þetta með 300 grömmin var bara ágiskun. Og 100+ bækurnar vísa til þess hvað ég er búin að hlaða svona sirkabát af bókum inn á hann.

Sögnin "kindle" þýðir að tendra/kveikja (ýmist bókstaflega eða í yfirfærðri merkingu). Í orðsifjaskýringum er oft vísað í fornnorræna nafnorðið "kindill" eða "kyndill". Virðist hafa verið stafsett sitt á hvað. Mér finnst ágætt að nota orðið án ufsilons til að aðgreina það frá orðinu sem merkir blys ;)

Harpa Hreinsdóttir 22.8.2012 kl. 20:40

3 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Já, Kindle fire er baklýstur og með snertiskjá. Það er bæði hægt að lesa bækur á honum, horfa á kvikmyndir og allan fjárann. Bækur get ég líka sett inná hann eða sótt þær með honum og á flestan hátt er hægt að nota hann sem tölvu. Nota hann þó aðallega til að lesa bækur. Minnir að ég hafi lesið einhversstaðar að hann væri fjögurhunruðsextíuogeitthvað grömm, en fullyrði það ekki (hef ekki vigtað hann) Stafsetningin getur skipt máli. Finnst hann einmitt vera einsog blys. Upsilonin eru yfirleitt notuð skv. orðsifjum frekar en til aðgreiningar, eða hvað? Finnst allt sem snertir rafbækur nokkuð áhugavert.

Sæmundur Bjarnason, 22.8.2012 kl. 22:30

4 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

takk, flott blogg. Ég hef fyrir löngu gefist upp á fésbókinni líka. Núna kommenta ég bara örsjaldan hér.

Takk Sæmundur

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 23.8.2012 kl. 04:51

5 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk fyrir það, Anna.

Sæmundur Bjarnason, 23.8.2012 kl. 08:37

6 identicon

Er tíminn ekki að renna út hjá sérstökum..
Hey Óli, you are doing it wrong

Facebook is for losers; you are not on Facebook, Facebook is on you ;)

DoctorE 23.8.2012 kl. 09:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband