1548 - Jól, Palestína o.fl.

Scan16Gamla myndin.
Ţessi mynd hlýtur ađ vera tekin í Löngubrekku í Kópavogi. Hvađ Jón Kristinn og Bjössi eru ađ rćđa um ţarna veit ég ţó ekki.

Segja má ađ stefni í hanaslag milli ríkisendurskođanda Sveins Arasonar og ríkislögreglustjóra Haraldar Johannessen. Allt bendir til ađ ríkislögreglustjóri tapi ţeim slag. Ţó getur ţetta mál endađ fyrir dómi og hugsanlega haft áhrif á ríkisstjórnina. Ţetta mál fjallar um ađ ríkislögreglustjórni afhendi ríkisendurskođanda gögn um innkaup ţess fyrrnefnda á ákveđnu tímabili. Hugsanlega skiptir mestu máli hvernig túlkuđ er sú neyđ sem lögreglan bjó viđ, eđa taldi sig búa viđ, ţegar ákvörđun um kaupin var tekin.

Ţegar ég var lítill var ţessi vísa mjög vinsćl:

Ţó desember sé dimmur
ţá dýrleg á hann Jól.
Međ honum endar áriđ
og aftur hćkkar sól.

Ekki veit ég eftir hvern ţessi vísa er. Kannski er ţetta úr ljóđi um alla mánuđina. Líka voru vinsćlar vísur um gömlu mánuđina og t.d. rámar mig í vísu um Góu ţar sem sagt var ađ hún gengi á éljapilsi síđu.

Upphaf Gilsbakkaţulu var einnig mjög frćgt og jafnvel ţulan öll sem ég held ađ sé svona tíu til tólf vísur. Mig minnir ađ fyrsta vísan sé svona:

Kátt er á jólunum, koma ţau senn,
upp munu ţá líta Gilsbakkamenn,
upp munu ţeir líta og undra ţađ mest,
ađ úti sjái ţeir stúlku og blesóttan hest,
úti sjái ţeir stúlku, sem umtöluđ varđ:
"Ţađ sé ég hér ríđur hún Guđrún mín í garđ,
ţađ sé ég hér ríđur hún Guđrún mín heim."

Sagt er ađ ţulan sé eftir einhvern Kolbein Ţorsteinsson (Google.com) en engin deili veit ég á honum.

Ţađ eru einkum ţrjú mál sem núverandi ríkisstjórn ţarf ađ koma í höfn áđur en hún gefst upp. Ţau eru: ESB, kvótinn og stjórnarskráin. Vaxandi líkur eru á ađ hún komi alls ekki öllum ţessum málum í gegn fyrir nćstu kosningar. Jafnvel bara einu ţeirra. Mestar líkur eru á ađ ţađ verđi kvótamáliđ, jafnvel ţó LÍÚ, sjálfstćđisflokkurinn og hugsanlega sjávarútvegsráđherrann sjálfur standi mjög ákveđiđ gegn öllum breytingum ţar. Alls ekki er ţó líklegt ađ gjafakvótinn eđa leyfiđ til framsals veiđiheimilda verđi međ öllu afnumiđ. Miklu líklegra er ađ enn verđi reynt ađ lappa upp á kerfiđ. Ţjóđin er samt einhuga um ađ umbóta sé ţörf á kvótakerfinu.

Í dag var samţykkt á alţingi tillaga um viđurkenningu á sjálfstćđi Palestínu. Sú tillaga var samţykkt međ 38 atkvćđum. Sjálfstćđismenn 13 ađ tölu sátu ţó hjá og er skömm ţeirra mikil.

IMG 7188Ţetta eiga ökumenn ađ lesa og tileinka sér á hálfri sekúndu.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Merkilegt nokk hefur frćndi minn tekiđ saman pistil um sr. Kolbein ţann er orti Gilsbakkaţulu (sá var prestur á Gilsbakka í Hvítársíđu en fluttist seinna í Miđdal - í Mosfellssveit segir frćndi minn en ég held ađ ţađ sé ekki rétt heldur hafi sr. Kolbeinn orđiđ prestur í Miđdal í Laugardal). Sjá s. 7 í ţessum bćklingi:

http://staff.unak.is/not/oddurv/skjol/baeklingur.pdf

Harpa Hreinsdóttir 30.11.2011 kl. 00:32

2 identicon

Og hér er einnig örstutt ćviágrip ţessa merkilega prests og Gilsbakkaţula fylgir fyrir neđan - síđa úr Ćskunni 1973:

http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=4628447

Harpa Hreinsdóttir 30.11.2011 kl. 00:35

3 identicon

Vísan um desember er úr mánađakvćđi, líklega ţjóđkvćđi, sem hefst á "Tólf eru synir tímans".

Harpa Hreinsdóttir 30.11.2011 kl. 00:39

4 Smámynd: Sćmundur Bjarnason

Takk Harpa. Vissi ţetta ekki.

Sćmundur Bjarnason, 30.11.2011 kl. 10:40

5 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Og ţú veist heldur ekki, ađ Sjálfstćđisflokkurinn tekur ekki ţátt í helför međ ţví ađ hann stimplađi sig út viđ atkvćđagreiđsluna um Palestínu. Eins og ţetta vćri mikilvćgasta máliđ í leiksýningu Samfylkingarinnar? Össur varđ reyndar ekki fyrstur til ađ ljá Pal-ríkinu sem aldrei var til stuđning sinn. Kýpur og Malta voru víst búin ađ veita ţann stuđning ţegar áriđ 1988. Össur er ekki skarpur í ţeirri sögu sem hann vill breyta, frekar en ađrir Íslendingar, ţví ţađ sem rekur ykkur áfram er gyđingahatur, gamalgróin illindi og öfgar.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 30.11.2011 kl. 14:39

6 identicon

Viđ, sem fćddur erum á dögum Kristján heitins tíunda og fylgst höfum vel međ málum Palestínu, erum bara flest á annari skođun, en ţú Vilhjálmur.

Ólafur Sveinsson 30.11.2011 kl. 16:29

7 Smámynd: Sćmundur Bjarnason

Já, Villi minn, ég tek ekki mikiđ mark á ţér í Palestínumálum og ekki Fischer-málum heldur. Í mörgu öđru ert ţú samt vel ađ ţér en hćttir til ađ ýkja hlutina.

Man vel eftir ţví ţegar David Ben-Gurion kom í heimsókn til Íslands og móđgađi hina sannkristnu sjálfstćđismenn.

Sćmundur Bjarnason, 30.11.2011 kl. 22:56

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband