1464 - Verðtrygging

Hvorki Guðbjörn Jónsson, Marínó G. Stefánsson, Seðlabankinn, Hagsmunasamtök Heimilanna, Valdimar Bjarnason né aðrir sem tjáð hafa sig um þetta verðtryggingarmál eru fyllilega heiðarlegir. Reikniaðferðirnar er erfitt að skilja svo ekki sé nú talað um túlkanirnar. Allir virðast hugsa meira um sinn eigin hag og það sem áður hefur verið sagt, en það sem mestu máli skiptir. Fólki er almenn alveg sama um hver segir hvað, en ekki um það hve mikið það á að borga. Gera þarf greinarmun á greiðslum og skuld, en skuldina þarf samt einhverntíma að greiða, eða hvað?

Hægt er að túlka lög með ýmsu móti. Lögfræðingar fara létt með að sanna hvaða vitleysu sem er, ef þeir fá að vaða elginn nógu lengi. Getur þetta fólk ekki komið sér saman um neitt? Þetta er eins og versta ríkisstjórn. Óskiljanlegt með öllu. Ef meiningin er að koma óorði á fjármagnseigendur (Lífeyrissjóði) og Íbúðalánasjóð þá er það í þann veginn að takast. Verðtrygginguna sjálfa er fyrir löngu búið að taka af lífi, en samt er hún enn við lýði og líður ágætlega.

Það sem vantar er einhver stofnun sem fólk treystir. Háskólinn er vanhæfur. (Hvaða háskóli?) Þessi stofnun þyrfti að hafa yfir að ráða fólki sem kynni að reikna og koma meiningu sinni óbrjálaðri frá sér. Er hún til?

IMG 6447Eftir því sem tunnurnar tæmast...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér þykir Siglfirðingum hafa tekist vel til með endurbyggingu þessara húsa við höfnina. Þetta hefur eiginlega allt; frumleika, gott útlit, snyrtimennsku og góða þjónustu til að toppa allt saman. Fór í sumar í hádegishlaðborð í Hannes Boy Café, síldarréttir og plokkfiskur. Afbragðs gott og verðið líka. Þjónustan til fyrirmyndar. Enda má segja að íslenskir ferðalangar hafi verið að uppgötva Siglufjörð í sumar, bæði staðinn sjálfan, Síldarminjasafnið og svo hina einstöku veðurblíðu sem þar er jafnan. Allt annað veðurlag en í "sumum" nágrannabæjum!

Ellismellur 31.8.2011 kl. 20:51

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Já, það var verulega gaman að koma til Siglufjarðar í sumar. Mun betra en ég hafði gert mér í hugarlund. Heimsóknin þangað er mjög eftirminnileg.

Sæmundur Bjarnason, 31.8.2011 kl. 21:07

3 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Ég sé að Marínó hefur orðið Stefánsson hjá mér í staðinn fyrir að vera Njálsson. Svona er ég nú ruglaður. Vara alla við að treysta mér. Gæti auðvitað reynt að breyta þessu, en það er með vissum hætti fölsun, því ég var bara að taka eftir þessu núna. Hefði verið nær að lesa þetta betur yfir.

Sæmundur Bjarnason, 1.9.2011 kl. 08:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband