1275 - Mér heyrðist svartur ullarlagður detta

Maður kom á bæ og þóttist vera blindur. Þessu hafði hann fundið uppá til að þurfa ekki að starfa neitt á vökunni. Þetta var þegar tíðkaðist að láta gestkomandi hjálpa til við vinnuna sem heimilisfólkið hamaðist við. Auðvitað datt heldur engum í hug að fara fram á greiðslu fyrir mat og næturgreiða.   

Sá blindi varð var við að ein prjónakonan missti ull á gólfið og sagði þá þessa ódauðlegu setningu: „Mér heyrðist svartur ullarlagður detta."

Ólafur forseti heyrir vel. Sennilega heyrir hann núna vel til þjóðarinnar yfir gjána miklu milli þings og þjóðar. Hvorum megin er Ólafur annars? Er hann kannski á botni gjárinnar?

Þetta eru spennandi tímar. Enginn vafi er á að sjónvarpað verður beint frá þeim merka atburði þegar Ólafur skýrir frá því hvað hann hefur heyrt.

Sá tími sem liðið hefur síðan Ólafur byrjaði að láta að sér kveða með því að neita að skrifa undir fjölmiðlalögin sællar minningar árið 2004 hefur verið viðburðaríkur í íslenskum stjórnmálum.

Stjórnskipunin er gjörbreytt. Þó veit engin hvernig hún er. Alþingi, einstakir þingmenn, stjórnmálaflokkar, kjördæmapotarar af öllum stærðum og gerðum, ríkisstjórn, seðlabankastjóri, hæstiréttur, forseti landsins og hver og einn sem því getur við komið hrifsar til sín þau völd sem hann mögulega getur.

Eru þá allir Íslendingar sem í embætti komast svona valdasjúkir? Það hlýtur að vera. Það er jafnvel reynt að kenna krökkum að vera svona. Eða var kannski. Hugsanlega er þetta að breytast. Unga kynslóðin hugsar kannski ekki svona. Hefur bara ekki enn fengið tækifæri til að sýna það.

IMG 4337Heimsókn í perluverksmiðju. Hægt var að kaupa skeljar sem yfirleitt innihéldu perlur, stundum tvær.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Þetta með Ólaf Ragnar er einkum spennandi fyrir tvennt. Það sem ekki skiptir Icesave lögin beint þykir mér meira spennandi: Ætlar hann að bjóða sig fram einu inni enn eða ekki? Ef hann ætlar fram einu sinni enn skrifar hann upp á. Annars ekki.

Svona einfalt er þetta.

Hvort hann fer fram einu sinni enn eða ekki er ekkert einfalt. Hann verður 68 ára í vor, yrði því 72 um þarnæstu kosningar. Hann er nægilega vel stæður (lífeyristryggður) til að fara ekki fram aftur, auk þess sem sagt er að konan hans sé þokkalega vel stæð. Mér þykir því líklegra að hann hugsi sér að segja stopp núna -- því miður, því það myndi spara þjóðinni nokkra smáaura að hafa hann eitt kjörtímabil enn.

Sigurður Hreiðar, 19.2.2011 kl. 12:18

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Já ég trúi því varla að Ólafur ætli fram einu sinni enn. Hins vegar finnst mér það fremur benda til þess að hann ætli fram ef hann skrifar ekki undir.

Sæmundur Bjarnason, 19.2.2011 kl. 15:40

3 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Hann Ólafur ólguna skynjar
og óragur valdinu beitir
er ólögum staðfestu synjar
og sáttargjörð þjóðinni veitir

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 19.2.2011 kl. 21:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband