1152 - Ljóđablogg

Eru bloggin ađ lengjast hjá mér? Já, en ţađ er útaf sögunum. Á ég kannski ađ sleppa ţeim? Mér ţykir einmitt svo gaman ađ svoleiđis vitleysu. Framhaldssagan um hundinn síkáta gćti einmitt orđiđ ađ ódauđlegu bókmenntaverki međ tímanum. Reyndar hafa fćrri áhuga á henni en dagbók borgarstjórans í Kardemommubć.

Framvegis er ég ađ hugsa um ađ taka Jens á ţetta. Ţađ er ađ svara öllum athugasemdum sem ég fć. Helst jafnóđum eđa sem fyrst. Gott ef ég hef ekki sér svar fyrir hverja athugasemd. Óţarfi ađ vera ađ spara plássiđ.

Óskar Ţorkelsson kvartađi undan of löngu bloggi. Ekki vil ég styggja hann. Datt samt í hug áđan ađ bćta viđ einum föstum liđ í bloggiđ mitt. Sá á ađ heita: „Vefsetur dagsins". Sá nefnilega áđan eitt sem eflaust á erindi ţangađ. Ţađ heitir harlenging.is (linkur) og er raunverulega til.

Líklega vantar Ingibjörgu Sólrúnu hörkuna og ófyrirleitnina sem Davíđ Oddsson hefur og hafđi. Ástćđan fyrir látunum í henni núna er eflaust sú ađ henni finnst sér ógnađ. Sennilega hefur hún misst ađ mestu áhrif sín í Samfylkingunni en Davíđ heldur sínu kverkataki á Sjálfstćđisflokknum. Ef kćrumálin frá Atlanefndinni koma til atkvćđa á Alţingi er alls ekki ljóst hvernig ţađ allt saman fer. Kannski líst Jóhönnu illa á ţá kattasmölun sem fram ţarf ađ fara hjá Samfylkingunni svo hlutirnir gangi upp og mun ţví reyna ađ komast hjá atkvćđagreiđslu.

Hér er afspyrnugott nýort atómljóđ sem heitir:

Súld

Ţađ er kominn síđari hluti september.
Hlýtt samt.
Ánamađkarnir hrađa sér eftir malbikinu
á votum gangstígunum.
Laufin eru ekki enn fallin af trjánum.
Sums stađar eru samt gulnuđ laufblöđ á stígum og túnum.
Göturnar eru blautar.
Bílarnir hrađa sér í burtu.
Grasiđ er grćnna en ţađ hefur nokkru sinni veriđ.
(sérstaklega hinum megin)
Sólin er í felum og himinninn grár.
Suđurloftiđ er bjart.
Litirnir eru allt öđru vísi en í sólskini.
Fáir eru á ferli.
Hundarnir skíta víst inni.

Nei, sennilega hef ég ekki neina sérhćfileika á ţessu sviđi. Samt er síđasta ljóđlínan nokkuđ góđ hjá mér. Bíđ nú međ öndina í hálsinum eftir ađ fótboltavertíđinni ljúki međ sigri Breiđabliks. „Hvađa önd er ţađ?" „Hef enga hugmynd." En haustvertíđarlok hljóta ađ vera á nćsta leiti. Ţá er hćgt ađ fara ađ snúa sér ađ alvöruíţróttum eins og félagsvist, bingó og ţess háttar.

Svo haldiđ sé áfram međ framhaldssöguna ţá er hundhelvítiđ fariđ ađ sofa. Búiđ ađ útvega rónanum brennivín og hćtt viđ öll sjálfsmorđsáform. Sé illa framá ađ hćgt sé ađ gera neđanmálssöguna spennandi međ ţessu áframhaldi. Verđ ađ láta Snata lenda í einhverju krassandi.

Einu sinni hitti hann Balka og Stralka eđa eitthvađ ţannig hétu ţeir. Ţá voru ţeir nýkomnir úr geimferđ og varla hćgt ađ tala viđ ţá fyrir monti. Nei annars, ţetta er víst vitleysa hjá mér. Ćtli ţeir hafi ekki bara drepist í geimnum og öllum veriđ sama.

Reyni betur. Ljótasti hundur í heimi kom eitt sinn í heimsókn. Sá var nú ljótur. Svotil alveg hárlaus, önnurhver tönn brotin, annađ eyrađ horfiđ og allt eftir ţví. Konan mín teiknađi samt mynd af honum en myndavélin neitađi öllum vendingum.

IMG 3214Sóley sólu fegri.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Hrćsnin sem í ljós er leidd
ađ lögmál eđlis engu lúti
og rúmsćng fyrir hunda reidd
en rónar látnir hírast úti

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 27.9.2010 kl. 11:45

2 Smámynd: Sćmundur Bjarnason

Laxdal yrkir ljóđ um hunda.
Löngum eru mál hans fá.
Ţangađ allir skulu skunda.
Skelfilegt ađ hlýđa á.

Sćmundur Bjarnason, 27.9.2010 kl. 13:41

3 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Er eđlilegt ađ yrkja um dog?
Ekki skal ég dćma
En ţetta er hálfgert hundablog
hjá höfđingjanum, Sćma.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 27.9.2010 kl. 15:07

4 Smámynd: Sćmundur Bjarnason

Ţetta er hálfgert hundablogg.
Höfđinginn ţađ segir.
Allur reis hann upp viđ dogg
og ákaft sig nú hneigir.

Sćmundur Bjarnason, 27.9.2010 kl. 16:07

5 Smámynd: Óskar Ţorkelsson

bara einn kaffibolli í ţetta sinn ;)

Óskar Ţorkelsson, 27.9.2010 kl. 21:56

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband