1094 - Fischer o.fl.

Bíð enn eftir úrskurði um lífsýnið sem tekið var úr líki Fischers skákmeistara á dögunum. Ef sýnið er neikvætt hefur Hæstiréttur Íslands hlaupið illilega á sig. Þessi deila fjallar eingöngu um erfðarétt og ekkert annað. Peninga, peninga og aftur peninga. Ef hæstiréttur hefur úrskurðað um þetta mál eingöngu með hliðsjón af peningum er það okkur Íslendingum til ævarandi skammar. Virðing fyrir þeim sem látnir eru er til marks um siðferði fólks. 

Séra Baldur í Þorlákshöfn byrjar blogg sitt svona fyrir nokkru: „Það er vont að eldast og deyja." Þetta segir presturinn sjálfur svo það hlýtur að vera rétt. (þetta með að það sé vont að deyja) Seinna í blogginu minnir mig að hann heimfæri þetta á öldunginn (eða unglinginn) sem nefndur er framsóknarflokkur. Baldur tilheyrði þeim flokki eitt sinn að ég held eins og fleiri góðir menn og örlög flokksins í nútímanum eru ekki falleg. Hann er kannski við það að deyja.

Magma mun halda sínu. Sé ekki annað en allt sé löglegt hjá þeim. Vel getur samt verið að þetta mál verði fordæmi þeim sem í framtíðinni fjalla um auðlindir landsins og þeir geri sig ekki seka um að selja auðlindir landsins einkaaðilum. Það er nákvæmlega það sem þetta mál fjallar um. Guðfríður Lilja og aðrir í flokki vinstri grænna tóku mikla áhættu með að leggja þá áherslu sem þeir gerðu á þetta mál. Í framtíðinni getur verið að þau gjaldi þess. Fyrirtækið Magma Energy mun hinsvegar fara varlega í því fjandsamlega umhverfi sem nú er orðið ljóst að það mun starfa í.

Enn er verið að kommenta á vísuna sem ég gerði um nágrannaerjurnar í Garðabæ. (Hún er á visur7.blog.is) Greinilegt er að mál sem þetta leggjast þungt á suma og er það engin furða. Svona mál eru fjarri því að vera skemmtileg.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Skil ekki svona bull.

Sæmundur Bjarnason, 29.7.2010 kl. 11:17

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Börn eiga rétt á arfi eftir foreldra sína og líka viðurkenningu á faðerni sínu. Um það snýst þetta mál. Það er ekki einu sinni hægt að segja að Hæstiréttur hafi hlaupið á sig ef Fischer reynist ekki faðirinn. Móðirinn hlýtur að vita að þetta erfðapróf lýgur ekki. Hún hlýtur því að hafa sofið hjá Fischerog hefur því ástæðu til að ætla að hann geti verið faðirinn. Það er auðvitað ekkert gaman að grafa upp lík en það er alveg óþarfi að vera að gera upp fólki leiðinlega græðgi þegar það er að gæta hgsamuna barns. Þetta snýst ekki um móðurina heldur barnið.

Sigurður Þór Guðjónsson, 29.7.2010 kl. 20:59

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Þú gefur þér ansi mikið þarna Sigurður, án þess að hafa hugmynd um það. En það er alveg ástæðulaust að vera að fjölyrða um þetta mál áður en úrskurður liggur fyrir.

Sæmundur Bjarnason, 29.7.2010 kl. 21:59

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég gef mér það að konan viti að erfðapróf ljúgi ekki. Ég gef mér að hún viti hvernig börn verða til og hefði þess venta ldrei dottið í hug að biðja um slíkt próf viti hín innrameð sér á óhugsanid sé að Fischer sé faðir barnsins. (Ekki þá er manneskjan ekki í lagi. ) Þetta er nú ekki mikið sem ég gef mér. Ég þarf ekkert að ''vita'' neitt sérstakt til að geta ályktað skynsamlega.  Sumir hafa látið uppi vanþóknun sína á uppgreftrinum og fjölyrt um það án þess að hafa þolinmæði til að bíða eftir úrskurðinum, úrskurði sem þeir voru á móti að fengi að gera.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 30.7.2010 kl. 11:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband