1089 - Þetta verða allir að lesa. Er mjög stutt

Var nokkuð ánægður með mitt síðasta blogg. JónDan hrósaði mér líka fyrir það. Verst hvað þessir Jónar Daníelssynir eru margir. Veit samt vel hver þessi er. Gaf eitt sinn út Bændablaðið með Bjarna frænda. Linkaði á bloggið frá fésbókinni. Ætti kannski að koma mér upp fleiri fésbókarvinum svo tilkynningar af þessu tagi fari sem víðast. Hmm. Athuga það. Kannski skrifa ég líka alltof mikið og alltof oft. Athuga það líka. Hætta áður en þetta fer úr böndunum. Símskeytastíll og Sæmundarháttur. 

Merkilegt mál þetta með rósturnar við Aratún í Garðabæ. Meðan ekkert kemur fram frá hinni hliðinni verður að leggja trúnað á margt í blogspot-frásögninni að frátöldum augljósum ýkjum. Hver skrifar þessa löngu frásögn verður svo bara að koma í ljós. Á margan hátt er þetta ágætlega skrifað. Gerði vísu um málið og hengdi við Mbl-greinina um það. Þessi frétt hefur orðið allvinsæl og þetta er eini linkurinn á hana. Heimsóknir vel yfir 2000. Held að það sé met hjá mér. Umdeilanlegt að setja full nöfn og heimilisföng í grein af þessu tagi. Gæti haft eftirmál.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú skil ég ekki Sæmi. Kannski er þetta of stutt fyrir mig. Er ekki á Feisbúkk og les kannski ekki nógu mikið.
Hvaða vísa og hvaða heimsóknir? Met hjá þér. Af hverju missti ég?

Guðmundur Bjarnason 24.7.2010 kl. 05:47

2 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

Þar sem ég stunda feisbúkkið meira en bloggið, en hef þó gaman að lestri skemmtilegra blogga eins og þínu, mættirðu alveg auglýsa nýjar færslur þínar á feisbúkkinu. Einfalt mál að skella link á vegginn þinn, okkur hinum til yndisauka.

Brjánn Guðjónsson, 24.7.2010 kl. 07:04

3 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Guðmundur, ég er með annað blogg hér á Moggablogginu sem heitir visur7.blog.is. Þar set ég eingöngu vísur sem ég geri um fréttir sem ég sé og linka þá í fréttina. Nota sjaldan. Stundum eru fréttir svo "heitar" að þetta vekur talsverða athygli. Í gær held ég að þetta hafi verið eini linkurinn í þessa frétt.

Brjánn, mér finnst yfirleitt ekki ástæða til að linka í bloggin mín á fésbókinni en auðvitað mætti gera það.

Sæmundur Bjarnason, 24.7.2010 kl. 07:38

4 identicon

Nú er ég farin að skilja þetta. Það er ósköp lélégur fattarinn hjá mér. Kærar þakkir.

Guðmundur Bjarnason 24.7.2010 kl. 10:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband