971 - Eldgos og fornrit

Það er gaman að fylgjast með frásögnum af eldgosinu á Fimmvörðuhálsi. Sérstaklega finnst mér gaman að fylgjast með Kristjáni Má Unnarssyni því hann er svo æstur og óðamála. 

Ég komst ansi nálægt gosinu sem varð í Skjólkvíum árið 1970 og kannast við margt af því sem Kristján er að lýsa. Hraunfossinn niður í gilið er samt extra. Slíkt var ekki í boði í Skjólkvíum.

Margt bendir til að enn sé þetta sannkallað túristagos. Ef Katla fer að bæra á sér er því lokið. Hana verður að taka alvarlega.

Myndirnar sem sýndar eru í sjónvarpinu af gosinu eru frábærar. Myndir reyndi ég að taka árið 1970 en tæknin var ekki á sama stigi þá. Ég reyndi að fara að Heklu þegar hún gaus í janúar árið 1991 en þá var ekki mikið að sjá. Bílafjöldinn samt mikill og myrkrið enn meira.

Fornrit komu til tals í kommentum hjá mér fyrir nokkru. Þeim Íslendingum fer kannski fækkandi sem lesið hafa Íslendingasögurnar. Ég hef lesið þær flestar og finnst þær afar misjafnar að gæðum. Allt frá því að vera hreinustu listaverk og í að vera endemis þvættingur.

Fjórar finnst mér bestar og eru þær þessar: (Ekki þó í neinni sérstakri röð.)

Njála. (Brennu-Njáls saga). Besta skáldsagan.
Laxdæla. Besta ættarsagan.
Eyrbyggja. Hefur allt.
Hrafnkatla. (Hrafnkels saga Freysgoða). Besta smásagan.

Af þessu má skilja að ég hafi engan sérstakan áhuga á Grettissögu, Egils sögu, Gísla sögu Súrssonar eða Fóstbræðrasögu. Hef ekki einu sinni reynt að lesa Gerplu Kiljans enda er ég enginn sérlegur aðdáandi hans. Hann hefur verið alltof fyrirferðarmikill í íslenskri bókmenntasögu tuttugustu aldar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Ketill féll þar allur í eld,
ofur sagan Kristjáns seld,
aldrei leggst hann undir feld,
en alveg galinn þó ég held.

Þorsteinn Briem, 26.3.2010 kl. 08:08

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Kolla er með skrítið skegg,
skyldi ég sjá ef út af legg,
þar í körfu öll sín egg,
ætíð geymir bakvið vegg.

Nei, ég segi nú bara si svona. Ekki að ég viti það, eins og hún amma mín sagði.

Þorsteinn Briem, 26.3.2010 kl. 11:36

3 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Oní Hrunagilið hraun
hellist eins og buna
Kristján Unnars ekki baun
óttast eyðinguna

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 26.3.2010 kl. 13:38

4 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Engum héld ég hugnaðist
hérna óbreytt ástand
Iður jarðar opnaðist
upp reis Nýja Ísland

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 26.3.2010 kl. 15:04

5 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Egla af öðrum sögum ber
eins og ís af krapi
Ég afkomandi Egils er
enda forn í skapi

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 26.3.2010 kl. 15:23

6 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Allt er hér í stuðla steypt
Steina hjá og Jóa.
Öðru varla inn er hleypt
Agli til að fróa.

Sæmundur Bjarnason, 26.3.2010 kl. 16:09

7 identicon

Ekki hægt að deil um smekk.

Hef verið að lesa fornritin síðustu 22 vetur í hóp manna og farið í "rannsóknar" ferðir á slóðirnar. vor og haust.  Bendi bara á Orkneyingasögu til viðbótar öllu hinu góða.
Snorri hafði hana við hlið sér og vitnaði í hana. Ég tala nú ekki um Sturlungublönduna.

Ólafur Sveinsson 26.3.2010 kl. 18:28

8 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þú mátt nú ekki fordæma Laxness án þess að lesa hann. Hann er mikill meistari, en það er með hann eins og fornsögurnar, sumar bækur eru hrein listaverk og önnur endemis þvættingur. Heimsljós er fremst hjá mér og Vefarinn sístur.  Þetta eru Íslendingasögur líka.

Hissa á að þér finnist Gíslasaga ekki merk. Hún er einhver flottasti reyfarinn af þessu öllu.  Er þetta ekki bara einhver landshorna og ættarrýgur í þér?

Jón Steinar Ragnarsson, 26.3.2010 kl. 19:53

9 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Það er alveg rétt hjá þér Jón Steinar að Gísla saga er ágæt og margar fleiri Íslendingasögur. Grettissaga hefur mér þó alltaf þótt ofmetin. Sumt eftir Laxness er mjög gott. Man t.d. að ég las á sínum tíma Sjálfstætt fólk og þótti hún mjög góð.

Sæmundur Bjarnason, 26.3.2010 kl. 20:52

10 identicon

Jón Steinar:
Sæmundi þykir Gíslasga merk. Bara ekki eins merk.

Ólafur Sveinsson 26.3.2010 kl. 23:04

11 Smámynd: Ben.Ax. (Benedikt  Jóhannes Axelsson)

Laxnes fékk verðlaun fyrir Gerplu og hana ættu allir að lesa. Líka þú. Kristján Már fer á kostum í lýsingu á því sem ekkert er. En ef hægt er að selja þessi ósköp er það svo sem gott og blessað.

Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 26.3.2010 kl. 23:27

12 identicon

Gerpla fábær.  Halldór stelur meira og minna ú r fornsögunum.  Ólafur digri var kvalari sem skar úr tungur, úr mönnum  Margar staðfestingar á því, ásamt fleiri lýsingum á hvernig hann kvaldi fólk.

Ólafur Sveinsson 27.3.2010 kl. 23:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband