936 - Ruddaleg skrif

Jónas Kristjánsson heldur því fram að bloggskrif séu ruddaleg af nauðsyn og eigi að vera það. Þessi skrif hafa breytt þjóðfélaginu mikið. Fólk vill sjá markviss og beitt skrif um bankahrunið og margt fleira. 

Annars er ég að hugsa um að hætta alveg að skrifa um Icesave, bankahrun og þessháttar leiðindi. Að minnsta kosti þangað til eitthvað afdrifaríkt gerist. Áður var sagt að loksins væri tími Jóhönnu kominn. Kannski er hann farinn núna.

Í yrkingum finnst mér gaman að prjóna við eitthvað sem aðrir hafa gert. Áðan var ég til dæmis að hugsa mikið um setninguna „Ein ég sit og sauma." Þá varð þetta til:

Ein ég sit og sauma
svipur beisli og tauma.
Lipri hendi lauma
læra milli á fund.

Best að halda ekkert áfram með þetta.

Ég get líka sett saman eitthvert bull sjálfur hjálparlaust. Til dæmis þetta:

Í Bretavinnunni byrjaði sviksemi landans
brauðið hann fékk án þess að leggja sig fram.
Öll okkar eymd er frá Tjallanum komin
með aðstoð og hjálp frá amríska draumnum.
Hann fjallaði um endalaust peningamagn.
Reddingar margar og reykingar stórar.
Útrásarvíkingar fóru með eld
umhverfis allt sem öðrum var heilagt.
Himininn hrynur í hausinn á oss.

Var að enda við að lesa bókina „Læknir í þrem löndum." Endurminningar Dr. Friðriks Einarssonar færðar í letur af Gylfa Gröndal. Ágætis bók og útgefin árið 1979. Hvernig ætli standi á því að ég er farinn að verða því hrifnari af bókum sem þær eru eldri? Einu sinni var þessu alveg öfugt farið. Þá vildi ég alltaf hafa bækurnar sem nýjastar.

Oft er sagt að bloggarar séu upp til hópa kverúlantar og uppfullir af gagnrýni. Þetta er ekki allskostar rétt. Hugsanlegt er að þeir séu jákvæðir gagnvart öllu sem þeir minnast ekki á.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Sýn Jónasar á blogg er mjög þröng. Hann lítur bara á það sem framhald á skrifum um þjóðfélagsmál í fjölmiðlum. En blogg er svo miklu meira en þjark um pólitísk mál.

Sigurður Þór Guðjónsson, 19.2.2010 kl. 01:03

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Á milli fóta lítið lafði,
lóðrétt niður ætíð hafði,
upprisuna IceSave tafði,
um eitt pund Sæma Brown hann krafði.

Þorsteinn Briem, 19.2.2010 kl. 01:39

3 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Sammála þér Sigurður. Þetta er eiginlega rörsýn hjá honum.

og

Stinnur mjög er Steini hér

og stífur milli fóta.

Til Englands nú hann ætlar sér

Icesave til að brjóta.

Sæmundur Bjarnason, 19.2.2010 kl. 02:10

4 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Það er svo sannarlega mikið um kverúlanta og þeir eru leiðinlegastir. Svo eru það flokkshestarnir sem liggja í skotgröfunum og verja allt sem kemur frá flokknum sama hvað það er vitlaust. Þeir geta verið skemmtilegir að atast í. Í þriðja lagi eru það fréttabloggararnir. Ég held að þeir hafi bara engan til að tala við

Hérna áður fyrr hlustaði maður á fréttir og fór svo að vinna. Núna er fólk að blogga um fréttir í stað þess að vinna.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 19.2.2010 kl. 04:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband