2201 - En vise paa dansk at digte

„Langt om længe“ eins og danskurinn mundi segja, er ég nú búinn að fatta af hverju mér gengur illa að læða inn myndum á Moggabloggið. Það er Explorerinn sem stendur fyrir þessu en ekki DO. Kannski það sé þessvegna sem ég hætti að nota hann á tímabili og fór að nota Chrome. Það er nefnilega sífellt að verða erfiðara og erfiðara að fylgjast með í þessum blessuðu tölvumálum. Sérstaklega ef maður þykist vita eitthvað um þau.

En vise paa dansk at digte
drömt har jeg længe om.
Men inspirasjonen vil svigte.
Jeg synes at være tom.

Þessa vísu gerði ég einhverntíma fyrir löngu. (Það var fyrir fisk, að þessi garður var ull.) Kannski hef ég birt hana áður í þessu blessaða bloggi mínu, sem engan enda virðist ætla að taka. Áðan gerði ég vísu sem ég setti snimmhendis á „Boðnarmjöðinn“, líkt og ég geri stundum og „glotti ofan í gólfið“ eins og konan mín komst að orði. Sú vísa átti að vera um Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og nýjustu vendingar í lekamálinu svokallaða. Sú vísa fékk ágætar viðtökur á Boðnarmiðinum en ég man hana samt ekki. Minn skilningur er þannig að allt megi segja í bundnu máli og því megi bara svara með sama hætti. Fleiri virðast hafa svipaðan skilning, því síðast þegar ég vissi voru einhverjir búnir að svara henni á þann hátt.

Ég get ekki verið annað en nokkurnvegin sammála Sigurjóni Egilssyni í Miðjunni um daginn, þar sem hann segir að óhjákvæmilegt sé að annaðhvort Hanna Birna Kristjánsdóttir ráðherra eða Reynir Traustason ritstjóri DV segi af sér. Þetta mál verður að fá einhvern endi.

Eru skutlarar framtíðin?  Sjá grein á ruv.is sem Salvör Gissurardóttir benti á.

Hjátrúin sanna. Hún lifir enn góðu lífi, hjátrúin meðal okkar Íslendinga. Horfði á það áðan út um gluggann hjá mér að maður einn forðaðist greinilega að svartur köttur gengi í veg fyrir hann. Greikkaði sporið mjög þegar kötturinn fór að nálgast. Svo fór að kettinum leist ekki á blikuna og stoppaði útá miðri götu. Skyldi svo greinilega um hvað málið snerist, breytti um stefnu og fór fyrir aftan manninn. Sömuleiðis finnst mörgum hampaminna að neita ekki tilvist álfa og huldufólks, því hugsanlegt sé að eitthvað slíkt fyrirfinnist. Á sama hátt mun Hanna Birna þverneita sannleikanum endalaust, í þeirri trú, að ekki sé hægt að sanna hann og kjósendur munu jafnvel kjósa hana aftur, ekki síst ef hún stendur sig sæmilega. Langathyglisverðast við málið frá upphafi er hve félagar hennar hafa verið tregir til að koma henni til hjálpar. HoHhhllskdjfasldfkj

Líklega er Árni Sigurðsson ekki hótinu betri en Geir Haarde, þó vinstri grænn sé. Fjandinn sér um sína. Og fjórflokkurinn líka. Ekki má lina tökin á fáfróðum almúganum. En er hann fáfróður? Annars er uppáhaldssamsæriskenningin mín sú að þetta alltsaman (Lekamálið og Sendiherramálið) tengist valdabaráttu í Sjálfstæðisflokknum eða hjá Samfylkingunni. Hvað veit ég? Einelti er það ekki. Að halda því fram er gengisfelling á raunverulegu vandamáli.

IMG 1251Með húsið á bakinu.

IMG 1256Matsölur í Kópavogi.


Bloggfærslur 2. ágúst 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband